Fyrsti hlutur af Þjóðverja sögum. Skrifað að Starrastöðum árið MDCCCXXII. Einar. (2r)
„Þjóðverja sögur þessar í þremur bindum hripaði ég allar á einum vetri í flughasti á helgidagakvöldum og nóttum þegar aðrir sváfu því fyrir önnum sem ég á hendi hafði úti og inni gat ég ekki annan tíma brúkað til skrifta. Band og ritregla er víðast lík þeirri sem söguhöfundurinn hafði í sinni bók sem þessi er eftir ritin. Band brúkaði ég mér til flýtirs jafnvel þó ég sæi að það spillti leturgjörðinni í svo mikilli hraðskrift sem ég varð að hafa. Sumstaðar við landa staða og mannanöfn vantar áherslumerkin þar harður hljóðstafur á að vera en svo var nær alls staðar í frumritinu sem ég fyrir mér hafði. Vil ég því biðja þá sem bækurnar lesa eður eignast frá minni hendi að leiðrétta og umbæta þennan galla því aldrei mun ég orka að gjöra það sjálfur. Þann 12. febrúar 1849. Einar frá Starrastöðum. (1r)“
Án titils í handriti
„Frá landaskipan“
Úti á spássíu: „1. þáttr tekur 2400 ár“ Efni handritsins er skipt í 11 þætti og er tiltekið hve langt tímabil hver þáttur spannar. Þættirnir eru án fyrirsagnar. Kaflar handritsins eru 468, hver með sinni fyrirsögn. Verða þáttaskilin og þær kaflafyrirsagnir sem næst þeim eru hafðar hér sem titlar handritsins en kaflanúmerum sleppt.
Pappír.
Tíunda hvert blað var merkt fyrir myndatöku.
Einn dálkur.
Leturflötur er 160 165 mm x 125 mm.
Línufjöldi 26-29.
Upphafsstafur fyrstu línu flestallra þáttanna allmikið stækkaður og nokkuð skreyttur en ólitaður.
Upphafslína flestallra þáttanna víða rituð stærra og íburðarmeira letri en er á meginmáli.
Ártöl á ytri spássíum flestra blaða.
Smálegar viðbætur og athugasemdir á spássíum á stöku stað í handritinu.
Tveir lausir seðlar fremst, annar úr prentaðri bók á latínu í átta blaða broti, hinn partur af sendibréfi og minnispunktar.
Guðmundur Einarsson sýsluskrifari gaf Reykjavíkurdeild Hins íslenska bókmenntafélags 1865.
Áður ÍBR A. 21.
Landsbókasafn keypti handritasafn Reykjavíkurdeildar Hins íslenska bókmenntafélags 1901.