Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

ÍBR 3 fol.

Sannar sögur af nokkrum merkilegum fornaldarmönnum ; Ísland, 1837-1838

Titilsíða

Sannar sögur af nokkrum merkilegum fornaldarmönnum. Skrifaðar í flýtir í vertrarhjáverkum 1837 og 1838. (Fremra saurblað 2r)

Tungumál textans
íslenska

Innihald

1 (1r-13r)
Persakonungar
Titill í handriti

Persakonungatal

Efnisorð
2 (14r-37r)
Jugurtha
Titill í handriti

Sagan af Iúgúrtanúmída kóngi eður frá styrjöld hans og Rómverja

Efnisorð
3 (37v-49v)
Catilina
Titill í handriti

Sagan af Lúcíus Katilína

Efnisorð
4 (50r-62v)
Sulla
Titill í handriti

Saga af Lúcíus Cornelíus Sulla

Skrifaraklausa

Enduð 24. maí 1838. (62v)

Efnisorð
5 (63r-217v)
Cæsar
Titill í handriti

Saga Kajus Július Cæsars Dictators

Skrifaraklausa

Hér eftir læt ég fylgja nokkra seinni tíða söguþætti, og þó þeir séu ei jafn merkilegir sem undanfarin saga, þótti mér þó allvel hæfa að rita þá hér, til að sýna mismun þann sem er á atferli og þekkingarhætti manna frá því er var á fyrri öldum. Þar til eru þættir þessir á Norrænu snaraðir af sama fræðimanni og næsta saga fyrir framan. (217v)

Efnisorð
6 (218r-226v)
Mandrin stigamaður
Titill í handriti

Saga af Mandrín stigamanni

Efnisorð
7 (227r-229v)
Svarti herstjórinn
Titill í handriti

Þáttur svarta herstjórans

Efnisorð
8 (229v-232r)
Dominicus Manuel greifi af Ruggen
Titill í handriti

Þáttur af Domenicus Semanúel greifa af Ruggeró

Efnisorð
9 (232r-235v)
P. J. Gundling
Titill í handriti

Þáttur af Pauli Jacob Gundling

Efnisorð
10 (236r-248v)
Friðrik fyrsti
Titill í handriti

Sagan af Friðreki 1ta Praussa konungi og kjörfursta af Brandinaborg

Efnisorð
11 (249r-323v)
Friðrik annar Prússakonungur
Titill í handriti

Saga af Friðreki preussa konungi hinum mikla

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni

Pappír

Blaðfjöldi
ii + 324 + i blöð (345 mm x 200 mm). Autt blað: 324.
Tölusetning blaða

Gömul blaðsíðumerking 2-124 (1v-62v), 2-362 (63v-217r).

Skrifarar og skrift
Ein hönd ; Skrifari:

Einar Bjarnason

Skreytingar

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

Á fremra saurblaði 2r er titill með hendi Einars Bjarnasonar.

Á fremra saurblaði er athugsemd um ritun handritsins: Sögubók þessa hefi ég skrifað í flýtir á helgidagakvöldum og nóttum, og alla eftir eiginhandriti, þeirra manna er sögunum hafa af dönsku á íslenska tungu snúið, og hefi ég fylgt þeirra ritmáta og stafsetningu, en þess vil ég geta að Cæsars sögu, sem er, síðsta söguverk sýslumanns sál. Espólíns, bar ég að nokkra saman við þá dönsku sögu sem hann hafði fyrir sér, og jók því inní sem hann hafði undan felt er af nokkru var merkilegt; einnig hefi ég bætt við fáeinum skýringargreinum, sem standa á spássíum bókarinnar. Og er vísast til hvað við eiga með bókstaf, en hitt sem í söguna á að innsetjast er oftast auðkennt með litlu merki. Víða hvar hefi ég sett áherslumerki, yfir hörðum hljóðstöfum, í manna- og staðanöfnum, þar þau ekki voru í þeirri bók sem ég eftirritaði, má þó vera mér hafi víða gleymst að setja þau. Þann 18. mars 1849. Einar. f. Starrastöðum. (Fremra saurblað 2v)

Á fremra saurblaði 2v er efnisyfirlit með hendi Páls Pálssonar stúdents.

Band

Skinnband með spennum.

Uppruni og ferill

Uppruni
Ísland, Starrastaðir 1837-1838
Ferill

Guðmundur Einarsson sýsluskrifari, gaf Reykjavíkurdeild Hins íslenska bókmenntafélags 1865.

Áður ÍBR. A. 27.

Aðföng

Landsbókasafn keypti handritasafn Reykjavíkurdeildar Hins íslenska bókmenntafélags 1901.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

Örn Hrafnkelsson frumskráði fyrir myndvinnslu, 19. október 2009 ; Handritaskrá, 3. b.

Skráning Páls Eggerts Ólasonar á handritinu er aðgengileg í ritinu Skrá um handritasöfn Landsbókasafnsins, 3. bindi , bls. 207.

Myndir af handritinu

Myndað fyrir handritavef í október 2009.

Notaskrá

Titill: Skrá um handritasöfn Landsbókasafnsins
Ritstjóri / Útgefandi: Páll Eggert Ólason
Umfang: I-III
Lýsigögn
×

Lýsigögn