Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

ÍB 218 8vo

Rímur af Gunnari á Hlíðarenda ; Ísland, 1836

Tungumál textans
íslenska

Innihald

1 (1r-113r)
Rímur af Gunnari á Hlíðarenda
Upphaf

Feðra kæra foldin mín

Athugasemd

Á lausu blaði aftan við, 114r-114v, eru 8 fyrstu erindin í 20. rímu

Forrit skrifara 218 8vo er skert, samanber 112v: hér vanta[r] tvö blöð í handrit skáldsins sem eru að öllu leyti töpuð [og] 113r: hér vantar í rímuna

20 rímur

Óheilar

Efnisorð
2 (115r-120v)
Kvæði
Upphaf

Bjargey móðir Hróalds hét …

Athugasemd

Viðbót við rímuna af Gunnari á Hlíðarenda

Á spássíu 115r með annarri hendi: NB. Þetta er líklega viðbætt af öðrum

Lýsing á handriti

Blaðefni

Pappír.

Blaðfjöldi
i + 121 blöð (173 mm x 107 mm) Auð blöð: 113v og 121.
Tölusetning blaða

Gömul blaðsíðumerking 2-223 (1r-113r).

Skrifarar og skrift
Tvær hendur ; Skrifarar:

I. Árni Thorlacius kaupmaður.

II. Páll Hjaltalín faktor.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

Saurblað með hendi Jóns Sigurðssonar.

Fylgigögn

Einn laus seðill.

Með handriti liggur blað með dönskum nýárskveðskap (Ved Soldet, Nytaarsnat 1861-1862).

Uppruni og ferill

Uppruni
Ísland 1836?
Aðföng

Níels Breiðfjörð beykir, 12. mars 1862.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill
Sigríður H. Jörundsdóttir yfirfór 10. ágúst 2016 ; Sigrún Guðjónsdóttir aðlagaði skráningu, 16. júní 2009 ; Handritaskrá, 3. b. ; Sagnanet 5. nóvember 1997
Viðgerðarsaga

Athugað 1997

Lýsigögn
×

Lýsigögn