Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

ÍB 376 4to

Kvæðabók séra Ólafs Jónssonar á Söndum ; Ísland, 1700-1800

Titilsíða

Margra andagtugra fagurlega ortra kvæða og sálmabók. Samantekinn og gjörð á XX ára tíma til andlegrar dægrastyttingar af þeim æruverðuga og vellærða drottins þénarar sáluga Sr. Ólafi Jónssyni fyrrum sóknarherra að Söndum við Dýrafjörð (1r).

Tungumál textans
íslenska

Innihald

Kvæðabók séra Ólafs Jónssonar á Söndum
Athugasemd

Á eftir blaði 122 vantar líkast til 2 blöð.

Með viðauka, sem er þó def.

Lýsing á handriti

Blaðefni
Pappír.
Blaðfjöldi
i + 229 + ii (187 mm x 150 mm).
Tölusetning blaða

Blaðsíðumerking 1-433.

Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er 157 mm x 132 mm.
  • Línufjöldi er 18-28.
  • Griporð.

Ástand
  • Á eftir blaði 122 vantar tvö blöð.
  • Göt eru í blöðum 2-8.
Skrifarar og skrift
Þrjár hendur; Skrifarar:

I. 2r-173v: Óþekktur skrifari.

II. 174r-220v: Markús Snæbjarnarson.

III. 221r-229v: Óþekktur skrifari.

Skreytingar

Bókahnútur á blöðum 216v og 220v.

Upphafsstafir víða smá flúraðir sjá: 2r, 5r, 10r og 31r

Griporð víða með flúri í kring um sig, sjá: 10r.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur
  • Víða er skrifað út á spássíðu, sjá: 138r.
Band

Yngra band (197 mm x 157 mm x 37 mm).

Bókaspjöld úr pappa klædd áþrykktum marmarapappír með léreftskili og -hornum.

Snið blálit.

Límmiði á fremra spjaldi.

Uppruni og ferill

Uppruni
Ísland á 18. öld.
Ferill

Frá Jóni Jónssyni Borgfirðingi.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill
Halldóra Kristinsdóttir yfirfór skráningu, 5. júlí 2012 ; Sigríður Hjördís Jörundsdóttir skráði 23. nóvember 2011 ; Íris Alda Ísleifsdóttir frumskráði, 14. júlí 2011 ; Handritaskrá, 2. b. ; Átaksverkefni 2011.

Notaskrá

Höfundur: Helga Jóhannsdóttir
Titill: Bekkjarslagur, Steffánsfærsla fengin Stefáni Karlssyni fimmtugum
Umfang: s. 25-30
Titill: Íslenzkar gátur, skemtanir, vikivakar og þulur
Ritstjóri / Útgefandi: Jón Árnason, Ólafur Davíðsson
Titill: Íslenzk fornkvæði. Islandske folkeviser,
Ritstjóri / Útgefandi: Jón Helgason
Umfang: 10-17
Lýsigögn
×

Lýsigögn