Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

ÍB 13 fol.

Skjöl og sendibréf ; Ísland, 1800-1899

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-168v)
Skjöl og sendibréf
Athugasemd

Ýmis skjöl er varða Jónas Hallgrímsson, personalia, kvæði, athuganir um náttúrufræði, drög að Íslandslýsingu, bréf frá honum til Jóns Sigurðsssonar (7), Árna Thorlaciuss kaupmanns (1), Páls Melsteðs, sagnfræðings, (3, öll í eftirriti Páls sjálfs). Til Jónasar má nefna bréf frá Brynjólfi Péturssyni (3), séra Þórarni Kristjánssyni (1) og Japetus Steenstrup. Uppdráttur Íslands (frá 1821) er aftan við.

Lýsing á handriti

Blaðefni

Pappír

Blaðfjöldi
169 blöð (346-170 mm x 220-105 mm) Auð blöð: 28, 44, 59-60, 86, 99, 101, 105, 107v, 111v, 117v, 118v, 120r, 123v, 126r, 143, 147v, 150v, 152r og 156r.
Skreytingar

Teikningar á bls. 22 -23

Spássíugreinar og aðrar viðbætur
Aftan á uppkasti eða afriti af bréfi Jónasar til Jens Lorenz Vahl (sjá þar) eru athugasemdir nokkrar um heitar laugar eftir Jónas, sbr. Rit IV, 217. Ólafur Halldórsson handritafræðingur upplýsir að bréfið sé til Jens Lorenz Vahls.
Band

Skinn á kili og hornum.

Innsigli

Innsigli á bls. 89r, 115v, 126v, 156v, 159r, 161v, 163v, 165r, 167v

Fylgigögn

Uppdráttur Íslands 1821 hefur verið lagður í sérstakar umbúðir og er geymdur í klefa.

Uppruni og ferill

Uppruni
Ísland 19. öld.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill
Sigrún Guðjónsdóttir frumskráði, 2. febrúar 2011 ; Handritaskrá, 2. b.
Viðgerðarsaga

Athugað fyrir myndatöku 3. febrúar 2011, óvíst hvenær gert var við hdr. gæti hugsanlega verið fyrir 1970 af V.B.

Myndað í janúar 2011.

Myndir af handritinu

Myndað fyrir handritavef í janúar 2011.

Lýsigögn
×

Lýsigögn