Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

Holm. Perg. 22 4to

Krossnessbók ; Krossnesi í Trékyllisvík

Tungumál textans
íslenska

Innihald

1 (1r-6r14)
Skáld-Helga rímur
Upphaf

... rekur fyrir borð hinn dauða...

Niðurlag

... nú nú nú nú nú.

Athugasemd

Óheilar, vantar framan af og einnig á milli bl.4 og 5.

Rímurnar enda í vísu 59 í sjöundu rímu.

Efnisorð
2 (6r15-7r)
Konukjör
Upphaf

Óðins milsku ætla eg fljóðum smíða...

Niðurlag

...eignist braginn ágæt yngis kvendi nú er hann kominn á enda.

Athugasemd

Kvæðið er víða illlæsilegt.

3 (7v-16v9)
Egils rímur einhenda og Ásmundar
Upphaf

Fýsir mig að fremja óð...

Niðurlag

...læt ég hér við ljóða stund litla skemmtan falla.

Athugasemd

Óheilar, vantar á milli blaða 10 og 11.

10 rímur.

Efnisorð
4 (16v10-28v)
Bjarka rímur
Upphaf

Mér fer rétt sem manni þeim ...

Niðurlag

... bræður hans tólf hafa barist við Hrólf...

Athugasemd

Vantar aftan af.

Rímurnar enda í tuttugustu vísu í áttundu rímu.

Efnisorð
5 (29r-45r13)
Mágus rímur
Titill í handriti

Mágus rýmur

Upphaf

Upp úr kafinu kvæða strönd...

Niðurlag

...hér skal þessi bragurinn falla.

Athugasemd

Níu rímur.

Efnisorð
6 (45r14-45v)
Allra kappa kvæði
Upphaf

Lesið er flest af lýða drótt...

Niðurlag

...og liðsmenn marga sína.

7 (46r-55r17)
Rollantsrímur
Upphaf

Forðum átta ég fræðabók...

Niðurlag

...af ljóðum hljóðum lágt og hátt, lendi og vendi kvæði.

Athugasemd

Sex rímur.

Efnisorð
8 (55r18-56v24)
Þjófarímur
Upphaf

Blés á fyrða silki-S[j]öfn...

Niðurlag

...og flýtir sér til skála

Athugasemd

Einungis mansöngvar rímnanna en þeir eru fimm að tölu.

Efnisorð
9 (56v25-57r22)
Hnakkakúlukvæði
Titill í handriti

hnacka kulu kvædi

Upphaf

Týrs af tunnu tappa láð...

Niðurlag

...drengir trú eg það finni, dögling trú eg það finni.

Athugasemd

Hluti kvæðisins er illlæsilegur.

10 (57r23-58r25)
Rímur af Þorsteini Víkingssyni.
Upphaf

Geta villda ég greint þann óð...

Niðurlag

... þegna heiðna Rollant felldi.

Athugasemd

Einungis fjórir mansöngvar.

Efnisorð
11 (58r26-58v)
Kvæði
Upphaf

Bóndi á hér dóttur þá eina og svo mæta...

Niðurlag

...bið yður viljan virða.

12 (59r-71v)
Bæringsrímur
Titill í handriti

Bærings rímur

Upphaf

Fyrri kunna ég fræða veg...

Niðurlag

....næsta er þetta...

Athugasemd

Vantar aftan af

Rímurnar enda í sjöundu rímu.

Efnisorð
13 (72r-90r)
Hektorsrímur
Titill í handriti

Hectors rímur

Upphaf

Fróðra er það fyrða plag...

Niðurlag

....taki þær hann sem vilja. Nú er úti.

Athugasemd

Óheilar, vantar á milli blaða 83 og 84 og einnig 87 og 88.

12 rímur.

Efnisorð
14 (90v)
Kvæði
Upphaf

Hef ég eigi hróðrar efni...

Niðurlag

...hver menja grundin ann.

15 (91r-93v)
Virgilesrímur
Titill í handriti

Virgilius rímur

Upphaf

Vandast mönnum vísna brag...

Niðurlag

...garpar láti golnis vín, glettu dikta heita.

Athugasemd

2 rímur.

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni

Skinn

Blaðfjöldi
93 blöð (195 mm x 142 mm).
Tölusetning blaða
Blaðmerking 1-93, seinni tíma viðbót.
Umbrot

  • Eindálka.
  • Línufjöldi er 26-31 línur.
  • Á sumum blöðum sést strikun fyrir leturfleti, t.d. á blöðum 3v og 73r.
  • Griporð.

Ástand
  • Vantar framan af handritinu og einnig vantar blað/blöð milli blaða 4 og 5, 10 og 11, 28 og 29, 83 og 84 og 87 og 88.
  • Skrift er víða illlæsileg.
  • Göt sem myndast hafa við verkun skinnsins, t.d. á blöðum 15 og 87.
  • Texti skertur t.d. á blöðum 5 og 10 vegna rifa í skinni.
  • Rifnað hefur neðan af blaði 10 og texti því skaddaður.
  • Hluti af blaði 1 virðist hafa verið skorinn burt og texti því skaddaður.
Skrifarar og skrift

Óþekktur skrifari, textaskrift.

Skreytingar

Frásagnarmyndir staðsettar á neðri spássíu á blöðum 11r, 18v, 78r og 92v.

Myndir af fólki á spássíum á blöðum 12r, 18r, 25v og 60r.

Mynd af hundi og andliti á blaði 6r og mynd af gróðri á blaði 93r.

Sammiðja hringir hafa verið dregnir á neðri spássíu blaðs 5r og hnútur á neðri spássíu blaðs 90r.

Stækkaðir upphafsstafir, dökkir að lit og flúraðir ýmist með dökku eða rauðu flúri.

Stækkaður upphafsstafur með rauðu og grænu flúri á blaði 56v.

Upphafstafur skreyttur með blómum á blaði 88v.

Upphafstafir með mannamyndum víða, t.d. á blöðum 13v, 16v og 61r.

Einkar veglegur upphafstafur með mannsmynd á blaði 29r.

Sums staðar eru rauðlitaðar fyrirsagnir, t.d. á blöðum 56v, 72r.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

Spássíugreinar allvíða, allt frá pennaprufum til kvæða. Jón Samsonarson hefur skrifað grein um þessi kvæði (Hvíla gjörði hlaðsól).

Á blaði 40v hefur verið litað með rauðum lit yfir upphafsstaf og með rauðum og grænum lit fyrir neðan upphafsstafinn. Einnig hefur verið litað með rauðu yfir fyrsta staf hvers erindis.

Band

Eikar-og furuspjöld sem eru fest saman með leðurreimum.

Uppruni og ferill

Uppruni
Handritið er skrifað á Krossnesi í Trékyllisvík á Íslandi fyrir Jón Hákonarson. Björn K. Þórólfsson tímasetur það til seinni hluta 16. aldar (Rímur fyrir 1600).
Ferill

Talið er að Jón Rúgmann hafi fengið handritið á Íslandi árið 1661 og flutt til Svíþjóðar.

Handritið er nú í Konunglegu bókhlöðunni í Stokkhólmi.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill
skráði handritið í apríl 2016.

Notaskrá

Höfundur: Björn Karel Þórólfsson
Titill: Rímur fyrir 1600
Lýsigögn
×

Lýsigögn