Fornmannasögur Norðurlanda. Áttunda bindi. Skrifaðar eftir gömlum bókum MDCCCLXXXII. 1r
„Innihald bókarinnar“
„Sagan af Samsyni fagra“
„I. kap. Þar hefjum vér frásögu þessa af einum mikilsháttar konungi …“
„… og sendi hana Artus konungi, þar af rís Skikkjusaga. Lýkur þar sögu þessari.“
Eitt blað vantar í söguna.
„Sagan af Randver fagra“
„I. kap. Sólimet er konungur nefndur, er réði fyrir Vallendi …“
„… og eigi vitum vér meira ritað af Randver konungi, en nú hefir sagt verið. Og lýkur hér sögunni af Randver konungi hinum fagra.“
„Sagan af Kára Kárasyni“
„I. kap. Það er upphaf þessarar sögu að í þann tíma sem Ermenrekur konungur hinn ríki réði fyrir Rómaborg og Vallandi, var sá konungur í Venedig er hét Reginbald …“
„… voru góðar samfarir þeirra Matthildar, og áttu mörg börn. Og lýkur hér sögunni af Kára Kárasyni.“
„Sagan af Hermanni Finnssyni illa“
„I. kap. Konungur sá réð fyrir Bjarmalandi er Finnur hét …“
„… Ívar og Samson hétu synir þeirra, og koma þeir við aðrar sögur. Hermann konungur varð gamall maður. Og lýkur hér sögu hans.“
„Sagan af Rígabal konungi og Alkanus fóstbróðir hans“
„I. kap. Fyrir Armeníu réði sá konungur er Íberus hét …“
„… Rígabal konungur ríkti langan aldur; og andaðist mjög gamall, varð þá Klarus konungur eftir hann; og endar svo sagan af Rígabal konungi og Alkanus fóstbróðir hans.“
„Sagan af Marroni sterka“
„I. kap. Andrónikus er maður nefndur, hann var bóndi einn …“
„… Það er margra sögn að Marron konungur hafi verið hin mesta hetja og allra þeirra manna sterkastur er sögur um geta. Og endar þannig sagan af Marroni sterka.“
Tvö blöð vantar í söguna.
„Sagan af Hinriki góðgjarna og Valentínus frækna“
„I. kap. Jarl er nefndur Kragi, sonur Gríms hins rauða …“
„… Hinrik sonur hans varð ágætur konungur, þó ekki yrði hann föður síns jafningi, er eigi getið um gifting hans, né bróður hans hans í Garðaríki og segir frá því í öðrum sögum. Lýkur svo sögunni af Hinrik konungi góðgjarna, og Valentínus syni hans.“
„Sagan af Flóres svarta og sonum hans“
„I. kap. Konungur sá ráði fyrir Tartaría er Flóres hét …“
„… Sintram stýrði ríki sínu til dauðadags; en um ríkisstjórn Flóresar konungs, er eigi getið meir í þessari sögu. Lýkur hér sögu Flóresar konungs svarta og sona hans.“
„Sagan af Partalópa og Marmoríu“
„I. kap. Svo er sagt að fyrir Miklagarði réði sá keisari er Saragus hét, hann var kvongaður og átti dóttur þá er Marmoría hét …“
„… Hann tók ríki eftir föður sinn , og varð mikill höfðingi sem … hans, en ekki er hér um hann meir ritað, og er hans getið í öðrum frásögnum. Lýkur með þessu sögunni af Partalopa og Marmoríu.“
Pappír.
Upprunaleg blaðsíðumerking 1-800.
Handritið var blaðmerkt með blýanti fyrir myndatöku.
Á milli blaða 16 og 17 vantar eitt blað, þ.e. bls. 31-32.
Á milli blaða 224 og 225 vantar tvö blöð, þ.e. bls. 449-452.
Nafn í handriti: Ólöf Ketilbjarnardóttir, Dalsmynni (352r).
Sigurbjörg Magnúsdóttir lánaði handritið til skráningar og myndatöku. Það var eign föður hennar. Magnúsar Ketilbjarnarsonar sem ólst upp í Tjaldanesi hjá föður sínum og afa, og Magnúsi Jónssyni og Ólöfu Guðlaugsdóttur. Handritið er nú í vörslu Ólafar Margrétar Magnúsdóttur, systur Sigurbjargar.
Halldóra Kristinsdóttir frumskráði 3. september 2018.