„Sagan af Herrauði og Bósa“
„I. kap. Saga þessi hefst eigi af leikleysu þeirri sem menn hafa sér til gamans eður skemmtunar …“
„… en sonur Herrauðar er sagt að hafi verið Ríkarður faðir Konráðs er fór í Ormaland. Lýkur þar með þessari sögu.“
„Sagan af Klarus keisarasyni“
„I. kap. Hlöðver var konungur og síðan keisari, sá réð fyrir Saxlandi …“
„…Síðan er frú Serína upphafin í drottningarsæti, hafandi dýrð og heiður með Klarusi keisarasyni; en Tekla var Pýrusi gefin. Lúkum vér þar með þessari frásögu og Klarusi keisarasyni og konungsdóttur Serínu.“
„Sagan af Addoníus konungi Marsilíussyni“
„I. kap. Það er ritað í fræðibókum fyrri aldar manna, að eftir Nóaflóð, skiptu þeir synir Nóa, heiminum með sér …“
„…Eigi er getið afkæmis Addoníusar konungs í þessari sögu. Lýkur þar með frásögu þessari af Addoníus konungi Marsilíussyni.“
„Sagan af Tersival fríða og Blávusi og Emeröldu grimmu“
„I. kap. Í þann tíma sem Amúrat sóldán réði Miklagarði og inntók Tyrkland, var sá hertogi í Venidig er Bertram hét …“
„…en dætur þeirra Júlía Brigetía, Tersía og Flórentína, öll voru börn þeirra mannvænleg. Lýkur þar með sögu þessari.“
„Sagan af Trójumönnum og Grikkjum“
„I. kap. Frá Pelías og Tasan, ráðin … Pelías hét konungur er réði fyrir ríki því á Grikklandi er Þessalía heitir … “
„…En stíl og orðfæri sem komin er úr dönsku máli margmáll og óskipulegur hefir öllum breytt verið sem orðið varð, og færður í íslenskan sögubúning og orðfæri og anda.“
„Greifasagan frá þrettándu öld“
„Smáborgir tvær Kima og Kavin lágu á landamærum Belgíulands og Frakkaríkis …“
„… þar fannst þá meðal annars hin markverða saga þessi, af svikum Kávins greifa og frelsi Kima greifa, er síðan varð efni sjónarspila. Lýkur þar með þessu ævintýri.“
„Hér segir frá Þebuborgarmönnum, hinni fornu borg í Egyptalandi“
„Hér skal nokkurs getið þess er ritað finnst um hina eldgömlu borg, eður aurmál hennar …“
„… fannst hún í Þebuborg og var flutt til hinna ísraelsku forngripasafna og þar geymd með mikilli vegsemd.“
Pappír.
Handritið er í eigu Teresu Drafnar Njarðvík. Afi Teresu, Njörður P. Njarðvík átti handritið og hefur sennilega fengið það á 8. áratugnum. Ferill þess þar á undan er óljós en ef til vill fékk Njörður handritið með gömlum prentuðum bókum frá móðurbróður sínum, Gústaf Adolf Lárussyni.
Halldóra Kristinsdóttir frumskráði 30. maí 2018.