Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM 232 8vo

Bréfabók Gissurar biskups Einarssonar ; Ísland, 1540-1548

Tungumál textans
íslenska

Innihald

Vensl

Þetta er frumrit. Sjá einnig AM 266 fol.

Athugasemd

Einungis hlutar úr bókinni.

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni

Pappír með vatnsmerkjum.

Vatnsmerki 1. Aðalmerki: Bókstafur P með fjórlaufi // Ekkert mótmerki (1, 2, 3, 5/6, 24, 38, 44, 45/46, 47, 48, 54, 59, 61, 62, 66, 67, 68/69, 70, 71, 74, 79, 80, 81, 82, 83, 85, 92, 95, 107, 108/109, 110, 112).

Vatnsmerki 2. Aðalmerki: Hringlaga aflöng stykki // Ekkert mótmerki (6).

Vatnsmerki 3. Aðalmerki: sth? // Ekkert mótmerki (12, 26, 40, 55, 56/57, 58, 60, 76, 114).

Vatnsmerki 3. Aðalmerki: Litlir hringir // Ekkert mótmerki (35).

Vatnsmerki 4. Aðalmerki: Aflöng stykki // Ekkert mótmerki (36).

Vatnsmerki 5. Aðalmerki: Fjórlauf // Ekkert mótmerki (96).

Vatnsmerki 6. Aðalmerki: Fjórlauf að hluta til // Ekkert mótmerki (100, 116, 117, 124).

Blaðfjöldi
iii + 121 + ii blöð (140-142 mm x 103 mm; fremstu 11 blöðin eru þó aðeins um 96mm að breidd).
Tölusetning blaða

Handritið hefur verið blaðmerkt síðar með blýanti fyrir miðri neðri spássíu 1-126. Hlaupið er frá tölunni 100 yfir í 106. Nokkur blöð eru einnig merkt efst í horni ytri spássíu en óreglulega.

Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca 92-124 mm x 82-90 mm.
  • Línufjöldi er ca 16-28.

Ástand

  • Vantar bæði framan og aftan af bókinni sem og innanúr.
  • Skorið hefur verið af ytri spássíu fremstu blaðanna og texti skerst dálítið við það.
  • Blöðin eru fúin og trosnuð. Víða hefur texti glatast af jöðrum af þeim sökum og sums staðar eru einnig göt og rifur í blöðunum. Gert hefur verið við blöðin með pappír og sums staðar límdur þunnur ofinn viðgerðardúkur yfir blöðin til þess að styrkja þau.

Skrifarar og skrift

Handritið er skrifað af skrifurum Gissurar biskups Einarssonar og ef til vill eitthvað af honum sjálfum, léttiskrift.

Skreytingar

Upphafsstafir eru sums staðar örlítið pennaflúraðir, sjá á bl. 21v, 35v, 51r, 55v, 60v, 114v.

Smá pennaflúr efst á bl. 41r.

Litlir einfaldir bókahnútar á bl. 53r, 57v, 92r, 118v.

Band

Band frá 1957 (142 mm x 112 mm x 30 mm). Pappaspjöld klædd ljósu skinni, saurblöð tilheyra bandi.

Handritið liggur í öskju.

Fylgigögn

  • Tveir seðlar með hendi Árna Magnússonar með upplýsingum um uppruna og feril o.fl.
  • Seðill 1 (142 mm x 92 mm): Fragment úr Bréfabók herra Gissurar er hjá mér í láni frá síra Hannesi Halldórssyni í Reykholti og vill hann það síðar aftur fá. Það sem hér vantar í verður fyllt úr þeirri in folio.
  • Laus seðill frá Kaupmannahöfn með upplýsingum um forvörslu.
  • Seðill 2 (142 mm x 76 mm): Hann gjörir hvorki rugl / né mas / sem þar aðrir er nú hafa fyrir / skemmstu utanfarið.

Uppruni og ferill

Uppruni

Handritið var skrifað á Íslandi á árunum 1540-1548.

Ferill

Árni Magnússon fékk að láni hjá séra Hannesi Halldórssyni í Reykholti (sjá seðil).

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 2. ágúst 1977.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

ÞÓS skráði vatnsmerki 15. júlí 2020.

ÞS skráði samkvæmt TEI P5 27. október 2009.

ÞS færði inn grunnupplýsingar 17. september 2002.

Kålund gekk frá handritinu til skráningar 5. október 1887 (sjá  Katalog II 1910:459 (nr. 2446). ).

GV sló inn texta af seðlum Árna Magnússonar undir umsjón ÞS og með hliðsjón af gögnum frá MJ.

Viðgerðarsaga

Viðgert og bundið af Birgitte Dall 1957. Eldra band (lélegt frá 1910) fylgdi ekki.

Myndir af handritinu

Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Stafrænar myndir Jóhönnu Ólafsdóttur á handrit.is.

Notaskrá

Höfundur: Guðvarður Már Gunnlaugsson
Titill: Sýnisbók íslenskrar skriftar
Höfundur: Jón Ólafsson
Titill: , Safn til íslenskrar bókmenntasögu
Ritstjóri / Útgefandi: Guðrún Ingólfsdóttir, Þórunn Sigurðardóttir
Umfang: 99
Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Lýsigögn
×
  • Land
  • Ísland
  • Staður
  • Reykjavík
  • Stofnun
  • Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
  • Vörsludeild
  • Handritasvið
  • Safn
  • Safn Árna Magnússonar
  • Safnmark
  • AM 232 8vo
  • Efnisorð
  • Bréfabækur
  • XML
  • Opna XML færslu  
  • PDF í einni heild
  • UpplýsingarUpplýsingar
  • Athugasemdir
  • Gera athugasemdir við handrit  

Lýsigögn