„Vér höldum hátíð í dag …“
„… af amnía secula seculorum. Amen“
Hér lýkur [trú(?)] sögu Páls postula.
Síðari tíma blaðmerking með bleki: 1-55.
Samtals 7 kver.
Fremstu blöðin eru skítug og slitin, einkum blað 2r.
Bókin er skæld og hefur gengist til; kápan skýlir blöðunum ekki að fullu þar sem hún er mjórri og hafa blaðbrúnir sumra blaðanna bognað af þeim sökum.
Skrifari óþekktur. Léttiskrift.
Litaðir upphafsstafir eða leifar þeirra fremst í handritinu (sjá t.d. blöð 3r og 7v).
Litaðir upphafsstafir eða fylltir og skreyttir með mynd eða flúri (sjá t.d. blöð 2r, 23v-24r).
Leifar af rauðum fyrirsögnum fremst í handritinu (sjá t.d. blöð 3r og 6v).
Strikað í stafi með rauðu bleki á stöku stað, t.d. á blaði 7r.
Á blöðum 8r, 26r, 28r, 32r, 34r, 38r, 41r, 42r, 47r og 51r eru rissaðar fígúrur, laufmynstur o.þ.h. (hægra horn blaða, neðst).
Á blöðum 54-55 er pennakrot. Þar má lesa nokkur nöfn. Nafn Gísla Þorkelssonar kemur fyrir á blaði 54v, Guðmundar Thorsteinssonar og Styrbjarnar Thorsteinssonar á blaði 55v (sjá: Ferill).
Kápa (140-145 mm x 90-95 mm x 25 mm) úr ósútuðu skinni (sjá nánar: Ástand).
Seðill með hendi Árna Magnússonar með upplýsingum um aðföng.
Handritið er skrifað á Íslandi og er tímasett ca 1550 (sjá ONPRegistre , bls. 466), en til loka 15. aldar í Katalog II , bls. 384.
Árni Magnússon fékk handritið frá Magnúsi Jónssyni skólameistara frá Leirá (sjá seðil), en sr. Árni Ólafsson að Hálsi í Álftafirði hafði sent honum bókina til Kaupmannahafnar þegar hann var þar stúdent. Séra Árni hafði fengið handritið hjá Oddi Gíslasyni í Fögruhlíð í Jökulsárhlíð í Kirkjubæjarkirkjusókn. En faðir hans, Gísli Þorkelsson bóndi, átti það (sjá AM 435 a 4to, blöð 15v-16r).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 2. apríl 1984.
Tekið eftir Katalog II , bls. 384 (nr. 2287). Kålund gekk frá handritinu til skráningar 9. janúar 1890. ÞS skráði 29. janúar 2002. VH jók við og lagfærði skráningu skv. reglum TEI P-5, 11. júlí 2011
Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.