Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM 745 4to

Snorra-Edda ; Ísland, 1725-1750

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-65r)
Snorra-Edda
Upphaf

… landinu var jafn frækn því að hann vá Fáfni …

Niðurlag

… drífandi álfröðull og Dvalins leika.

Athugasemd

Uppskriftin hefst í þeim hluta Skáldskaparmála þar sem segir frá samskiptum þeirra Guðrúnar Gjúkadóttur og Brynhildar Buðladóttur sem voru undanfari þess að Sigurður Fáfnisbani var veginn.

Lýsing á handriti

Blaðefni
Pappír.
Blaðfjöldi
i + 66+ i blöð (215 mm x 165 mm). Blöð 65v-66v eru auð.
Tölusetning blaða

  • Blaðmerkt er með blýanti 1-65. Blað 66 er ómerkt.

Kveraskipan

Átta kver.

  • Kver I: blöð 1-8; 4 tvinn.
  • Kver II: blöð 9-16; 4 tvinn.
  • Kver III: blöð 17-24; 4 tvinn.
  • Kver IV: blöð 25-32; 4 tvinn.
  • Kver V: blöð 33-40; 4 tvinn.
  • Kver VI: blöð 41-48; 4 tvinn.
  • Kver VII: blöð 49-56; 4 tvinn.
  • Kver VIII: blöð 57-66; 5 tvinn.

Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca (145 mm x 115 mm).
  • Línufjöldi er ca 18.
  • Línur, hugsanlega dregnar með þurroddi, afmarka víða leturflötinn við ytri spássíu.
  • Griporð (sjá t.d. blöð 4v-5r).
  • Vísuorð eru inndregin og sér um línu (sbr. blöð 26v-27r).

Skrifarar og skrift

Skreytingar

Textinn er allur fallega fram settur.

  • Fallega dregnir og fylltir upphafsstafir (sjá t.d. blöð 56v og 59r).

Band

Band (222 null x 175 null x 18 null) er frá 1860.

Spjöld eru klædd brúnum pappír. Strigi er á kili og hornum. Blár safnmarksmiði er á kili.

Uppruni og ferill

Uppruni

Handritið er skrifað á Íslandi eftir þeim hluta AM 748 4to sem eitt sinn var geymdur í AM 1 e beta fol., þó að undanteknum ættartölum. Það er tímasett til annars fjórðungs 18. aldar, en til upphafs aldarinnar í  Katalog II , bls. 172.

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 7. maí 1976.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

VH skráði handritið 8. júlí 2009; lagfærði í janúar 2011. ÞS skráði 5. október 2001 Kålund gekk frá handritinu til skráningargekk frá handritinu til skráningar  16. nóvember 1888 (sjá Katalog II; , bls. 172 (nr. 1860)).

Myndir af handritinu

Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Lýsigögn
×
Efni skjals
×
  1. Snorra-Edda

Lýsigögn