„heilög er sú hjálpin mest“
„hér skal fræðið falla. Amen.“
Vantar framan af.
Heiti kvæðisins kemur fram í því sjálfu.
Kvæði þetta er t.d. prentað í Vísnabók Guðbrands, 2000s. 241-245.
„Boðorða vísur“
„Sjálfur Guð fyrir sonar síns náð“
„góðan hjálpar kjarna / svo vel oooooooooo“
Vantar aftan af.
Kvæði þetta er t.d. prentað í Vísnabók Guðbrands, 2000s. 245-248.
Stakt blað.
Óþekktur skrifari, blendingsskrift.
Bl. 1r: Pennaflúraður upphafsstafur.
Band frá ágúst 1967 (244 mm x 248 mm x 2 mm). Pappakápa með línkili. Blaðið er límt á móttak. Handritið liggur í öskju með öðrum handritum í AM 720 a I-XI 4to.
Þegar handritið var bundið 1967 var blaðinu af vangá snúið öfugt, þannig að versóhliðin snýr fram en rektóhliðin aftur.
Í öskjunni liggur laus seðill frá Kaupmannahöfn með upplýsingum um forvörslu.
Handritið var skrifað á Íslandi. Kålund tímasetur handritið til 16. aldar ( Katalog II 1894:145 ). Jón Þorkelsson telur það hins vegar skrifað 1580 ( 1888:101 ).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 18. október 1988.
Viðgert og bundið í Kaupmannahöfn í ágúst 1967.
Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.