Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM 716 k 4to

Vísur um afgang Jóns Arasonar og sona hans ; Ísland, 1600-1700

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-4v)
Vísur um afgang Jóns Arasonar og sona hans
Titill í handriti

Vísur um afgang herra Jóns b. og hans sonar Ara l.

Upphaf

Rögnis rósar minni ...

Athugasemd

Á bl. 1r hefur verið strikað yfir niðurlag annars efnis.

Lýsing á handriti

Blaðefni
Pappír með vatnsmerkjum.
  • Aðalmerki: Slanga með kórónu (bl. 1 ).

Vatnsmerki á saurblöðum er mótmerki PDB, sennilega Skjaldarmerki Amsterdam. (Sjá t.d. bl. 6 í AM 176 i 4to).

Blaðfjöldi
i + 4 + i blað (191 mm x 159 mm).
Tölusetning blaða

Blaðsíðumerking á efri ytri spássíu rektósíðna með svörtu bleki.

Kveraskipan

Eitt kver:

  • Kver I: bl. 1-4 (1+4, 2+3), 2 tvinn.

Umbrot
  • Eindálka.
  • Leturflötur er 150 mm x 110 mm.
  • Línufjöldi er 21-22.
  • Griporð, pennaflúrað.
Ástand
  • Á blað 1r hefur verið límt hvítt blað og strikað yfir texta.
  • Blöð dökk og blettótt.
  • Eldri viðgerðir.
Skrifarar og skrift

Ein hönd, óþekktur skrifari, fljótaskrift.

Sami skrifari og í AM 716 i 4to.

Skreytingar

Fyrsti upphafsstafur blekdreginn skrautstafur 2-3 línur. Aðrir upphafsstafir eru ca. 2 línur.

Skreyting við eða umhverfis griporð.

Fyrirsagnir skrifaðar með kansellískrift.

Ígildi bókahnúts, (bl. 4v).

Spássíugreinar og aðrar viðbætur
  • Á bl. 1v er spássíuvers (þar sem kvartað er yfir siðbreytingunni) og á bl. 4v nafnið Snorri Magnússon, Bjarna Arnason, ásamt pennaprúfum.
  • Á bl. 1r, hefur síðari tíma hönd skrifað: Katrijn [..]or[..]dett[..], pennaflúr í kringum.

Band

Band frá c1772-1780. Pappaspjöld og kjölur klædd handunnum pappír. Titill og safnmark skrifað á kápu með dökk brúnu bleki. Á spjaldblöðum er prentað mál. Tveir límmiðar með safnmarki og hlaupandi númeri eru á kili.

Uppruni og ferill

Uppruni

Skrifað á Íslandi.

Með sömu hendi og AM 715 h 4to o.fl. handrit. Tímasett til 17. aldar í  Katalog II, bls. 137.

Samkvæmt AM 477 fol. voru einnig í AM 716 4to eftirfarandi kvæði, sem eru þar ekki lengur: Píslarminning eignuð Kolbeini Grímssyni, upphaf: Sárt er sverð í nurum, Harmagrátur, upphaf: Einn Guð almáttugur og Hugræða, upphaf: Einn og þrennur allsvaldandi herra, öll með einni hendi, með settaskrift.

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 17. október 1979.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill
  • MJG uppfærði með gögnum frá BS, 5. mars 2024.
  • ÞS skráði 26. september 2001.
  • Tekið eftir Katalog II, bls. 137 (nr. 1794). Kålund gekk frá handritinu til skráningar í október 188?.
Myndir af handritinu

Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Lýsigögn
×

Lýsigögn