Blaðsíðumerking á efri ytri spássíu með svörtu bleki 1-11, síðari tíma viðbót.
Eitt kver:
Ein hönd, óþekktur skrifari, fljótaskrift. Sami skrifari og AM 716 k 4to.
Fyrsti upphafsstafur blekdreginn skrautstafur 2-3 línur. Aðrir upphafsstafir eru ca. 2 línur.
Skreyting við eða umhverfis griporð.
Fyrirsagnir skrifaðar með kansellískrift.
Band frá c1772-1780. Pappaspjöld og kjölur klædd handunnum pappír. Titill og safnmark skrifað á kápu með dökk brúnu bleki. Á spjaldblöðum er prentað mál. Tveir límmiðar með safnmarki og hlaupandi númeri eru á kili.
Skrifað á Íslandi.
Með sömu hendi og AM 715 h 4to o.fl. handrit. Tímasett til 17. aldar í Katalog II, bls. 137.
Bl. 6r með hendi Árna Magnússonar.
Samkvæmt AM 477 fol. voru einnig í AM 716 4to eftirfarandi kvæði, sem eru þar ekki lengur: Píslarminning eignuð Kolbeini Grímssyni, upphaf: „Sárt er sverð í nurum“, Harmagrátur, upphaf: „Einn Guð almáttugur“ og Hugræða, upphaf: „Einn og þrennur allsvaldandi herra“, öll með einni hendi, með settaskrift.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 17. október 1979.