Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM 716 d 4to

Niðurstigningarvísur

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-4v)
Niðurstigningarvísur
Titill í handriti

Niðurstigninar vísur

Upphaf

Djarflega tek eg að dikta …

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni
Pappír.
Blaðfjöldi
4 blöð.
Umbrot

Skrifarar og skrift

Ein hönd.

Band

Fylgigögn

Fastur seðill (208 mm x 158 mm) með hendi Árna Magnússonar: Niðurstigningarvísur.

Uppruni og ferill

Uppruni

Handritið er tímasett til 17. aldar í  Katalog II , bls. 136.

Það var sennilega áður hluti af stærri bók, sem innihélt AM 715 a-b 4to.

Samkvæmt AM 477 fol. voru einnig í AM 716 4to eftirfarandi kvæði, sem eru þar ekki lengur: Píslarminning eignuð Kolbeini Grímssyni, upphaf: Sárt er sverð í nurum, Harmagrátur, upphaf: Einn Guð almáttugur og Hugræða, upphaf: Einn og þrennur allsvaldandi herra, öll með einni hendi, með settaskrift.

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 4. október 1979.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

Tekið eftir Katalog II , bls. 136 (nr. 1788). Kålund gekk frá handritinu til skráningar í október 188?. ÞS skráði 26. september 2001.

Myndir af handritinu

Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Titill: Íslensk miðaldakvæði I.2
Ritstjóri / Útgefandi: Jón Helgason
Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Lýsigögn
×

Lýsigögn