„Kroſs Kuædi af Kalldatarneſs Kröſsinum“
„Eg vil kueda vmm kröſsins dyrd ...“
Efst á bl. 1r er niðurlag annars efnis, 1 1/2 lína, útstrikað.
Á tvinni er Skjaldarmerki Amsterdam.
Blaðsíðumerking á efri ytri spássíu með svörtu bleki 1-10, síðari tíma viðbót.
Eitt kver:
Ein hönd, óþekktur skrifari, fljótaskrift. Sami skrifari og AM 716 b 4to og AM 716 h 4to.
Stafir í upphaf rímna eru dregnir aðeins stærri
Skreyting við eða umhverfis griporð.
Ígildi bókahnúts, lykkja og tveir punktar (bl. 5v).
Band frá 1978.
Pappaspjöld klædd fínofnum líndúk. Grófari dúkur á kili og hornum. Saurblöð tilheyra nýju bandi.Límmiði framan á og á kili með safnmerki
Eldra band frá c1772-1780. Pappaspjöld og kjölur klædd handunnum pappír. Titill og safnmark skrifað framan á kápu með dökk brúnu bleki. Á spjaldblöðum er prentað mál. Tveir límmiðar með safnmarki og hlaupandi númeri á kili.
Varðveitt með handritinu.
Handritið er skrifað á Íslandi.
Handritið er tímasett til 17. aldar í Katalog II, bls. 135.
Samkvæmt AM 477 fol. voru einnig í AM 716 4to eftirfarandi kvæði, sem eru þar ekki lengur: Píslarminning eignuð Kolbeini Grímssyni, upphaf: „Sárt er sverð í nurum“, Harmagrátur, upphaf: „Einn Guð almáttugur“ og Hugræða, upphaf: „Einn og þrennur allsvaldandi herra“, öll með einni hendi, með settaskrift.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 13. maí 1985.
Viðgert og bundið í Kaupmannahöfn 1978. Eldra band fylgir.