Fyrstu 34 Davíðssálmar þýddir á íslensku, með inngangi og ítarlegum Notæ Didacticæ á eftir hverjum sálmi. Endar í miðjum skýringum við 34. sálm. Í skrá Jóns Ólafssonar úr Grunnavík í AM 477 fol. er titilinn: Pſalltare Sr Päls Biỏrnsſonar. Bl. 6v-8 og 59v auð.
Handritið er tímasett til um 1700 í Katalog II , bls. 108.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 24. febrúar 1984.
Tekið eftir Katalog II , bls. 108 (nr. 1734). Kålund gekk frá handritinu til skráningar í október 188?. ÞS skráði 18. september 2001.