„Þá er liðið var frá hingaðburð vors drottins Jesú …“
„… einn almáttigur Guð yfir allar veraldir veralda. Amen.“
„Nú svo miklir peningar …“
Skráin er að því er fram kemur frá þeim tíma þá Narfi skildist við en Jón Þorsteinsson tók við. Á efri spássíu hefur verið skrifað ártalið 1504, að því er virðist með sömu hendi: Anno domini M d. iiii ar.
Tíðirnar samanstanda af latneskum sálmum með nótum og lesum á latínu. Á eftir fylgir ein af dæmisögum Jesú úr Matteusarguðspjalli og sálmur sem vantar aftan af. Tíðagjörðin í Ærlækjarbók er uppskrift, en ekki verður nú fundið forritið… Mér sýnist að forrit tíðanna hafi verið gamalt og sum andstefin megi rekja til textahefðar á meginlandi Evrópu og í Englandi. ( Sverrir Tómasson 2003, s. 90 )
Þessar fjórar línur, sem eru með annarri hendi en aðalskrifarans og illlæsilegar, eru í uppskrift Árna Magnússonar á meðfylgjandi seðli.
„Nikulám skulu vér heiðra hér“
„af vosi og vanda“
Hér er um nokkrar vísur um Nicholai á íslensku að ræða og á eftir þeim fylgir svofelldur lagboði: Skulu þessar vísur syngjast með eitt lag og preter rerum er sungið, hverjar tvær með sama lag svo sem prófan gengur utan síðasta vísan syngist með eitt lag og alle psallite.
Blaðmerkt 1-66 + 27bis og 36bis.
Níu kver.
Að mestu með einni hendi (árléttiskrift):
Band 192 null x 170 null x 42 null):
Spjöld eru klædd gulleitum pappír. Bókfell er á hornum og kili. Saurblöð tilheyra þessu bandi. Handritið liggur í ljósri strigaklæddri öskju.
Þrír fastir seðlar með hendi Árna Magnússonar, tveir eru á milli saurblaðs og blaðs 1r; sá þriðji er aftan við textablokkina fyrir framan aftara saurblað:
Handritið er skrifað á Íslandi. Upprunalegur hluti þess (blöð 1r-54v:5) er tímasettur til síðari hluta 15. aldar (sbr. ONPRegistre , bls. 457), en til 15. aldar í Katalog II , bls. 48.
Bókin tilheyrði kirkjunni á Ærlæk í Norður-Þingeyjarsýslu og var upprunalega gefin henni af Jóni Ólasyni (sbr. blað 31v og AM 435 a 4to, blað 17v). Sr. Jón Magnússon hefur síðar átt bókina (sbr. blað 40r og 63v). Vera má að Árni Magnússon hafi fengið bókina frá Birni Magnússyni, sem sagði hana hafa fylgt kirkju heilags Nikulásar að Ljósavatni (sbr. seðil 1r).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 18. apríl 1995.
Viðgert í janúar til febrúar 1995 og sett í öskju. Með fylgdi nákvæm lýsing á viðgerð og ljósmyndun.