Handritið var síðar blaðmerkt með blýanti 1-25. Blað 26 er ómerkt.
Með hendi séra Ólafs Gíslasonar á Hofi í Vopnafirði, fljótaskrift.
Band frá nóvember 1975 (215 mm x 190 mm x 12 mm). Pappaspjöld klædd fínofnum líndúk. Grófari dúkur á kili og hornum. Saumað á móttök. Saumað á móttök. Fremsta og aftasta saurbl. tilheyra bandi en fremra saurblað aftast var áður límt á bl. 26v. Handritið liggur í öskju.
Pappaband frá 1772-1780 fylgir (spjöld klædd handunnum pappír. Safnmark og titill skrifað framan á kápu. Blár safnmarksmiði á kili).
Bókina sem handritið tilheyrði fékk Árni Magnússon frá séra Ólafi Gíslasyni á Hofi í Vopnafirði (sbr. seðil).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 23. mars 1976.
Lagfært og bundið af Birgitte Dall í nóvember 1975.
Matthias Larsen Bloch batt á árunum 1772-1780.