Handritið hefur verið blaðmerkt síðar, bl. 1-2 og 4 með blýanti og bl. 3-16 með rauðu bleki.
Þrjú kver.
Krassað yfir texta á blaði 1r. Áður var einnig blað límt yfir það, en það hefur nú verið losað frá.
Með hendi séra Jóns Torfasonar, fljótaskrift.
Band frá árunum 1772-1780 (193 mm x 160 mm x 7 mm). Pappaspjöld klædd handunnum pappír. Safnmark og titill skrifað framan á kápu. Blár safnmarksmiði á kili. Spjaldblöð úr prentaðri bók.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 21. nóvember 1975.
Matthias Larsen Bloch batt á árunum 1772-1780.