Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM 564 a 4to

Sögubók ; Ísland, 1390-1425

Tungumál textans
íslenska

Innihald

1 (1r-2r)
Bárðar saga Snæfellsáss
Athugasemd

Tvö brot.

1.1 (1r-1v)
Enginn titill
Upphaf

… nes heiðar kollu …

Niðurlag

… lítt ertu staddur kumpán minn …

1.2 (2r-2r)
Enginn titill
Upphaf

… [G]estur lét fara til …

Niðurlag

… hafa og gefa mér …

2 (2v-4r)
Þórðar saga hreðu
Athugasemd

Tvö brot.

2.1 (2v-2v)
Enginn titill
Upphaf

… Ljótur son Þóru Hörða-Kára …

Niðurlag

… og var hann þá kallaður Þórður …

2.2 (3r-4r)
Enginn titill
Upphaf

…ga sínum það annað …

Niðurlag

… Þeirra son var herra Sighvatur, faðir Þórðar kakala, föður Kolbeins, föður Þórðar, föður Árna, föður Ingileifar.

Athugasemd

Endar á niðurlagi sögunnar.

3 (4r-4v)
Bergbúa þáttur
Upphaf

[F]jörður sá er gengur af Kollafirði …

Niðurlag

… þó eru slíkt fáheyrðir hlutir.

4 (4v)
Kumlbúa þáttur
Upphaf

[Þorst]einn Þorvaðsson mágur Þorfinns á Bakka …

Niðurlag

… inn [frá] Stað á Hamarlandi.

5 (4v)
Draumur Þorsteins Síðu-Hallssonar
Upphaf

Draum þenna dreymdi Þorstein son Halls …

Niðurlag

… láttu drepa hann sögðu …

6 (5r-7r)
Víga-Glúms saga
Athugasemd

Þrjú brot.

6.1 (5r-5v)
Enginn titill
Upphaf

… verða ef drepin er …

Niðurlag

… fórst fyr[ir] þótti m …

6.2 (6r-6v)
Enginn titill
Upphaf

… óvinir koma að mér …

Niðurlag

… er horfin og hefur eigi f…

6.3 (7r-7r)
Enginn titill
Upphaf

… Það var eitt su …

Niðurlag

… Glúmur hafi best verið að sér allra vígamanna hér á landi.

Baktitill

Og lýkur þar Glúms sögu.

7 (7r-7v)
Harðar saga
Upphaf

[Grí]m[kel]l goði hét maður hann var son Bjarnar gullbera …

Niðurlag

… Litlu síðar kom Torfi á Signýjar[staði] og spurði hví Helga …

Athugasemd

Titli hefur verið bætt við með samtímahendi: Harðar saga Grímkelssonar .

Byrjar á upphafi sögunnar, endar óheil.

Lýsing á handriti

Blaðefni
Skinn.
Blaðfjöldi
7 blöð (280 mm x 234 mm).
Tölusetning blaða

  • Síðari tíma blaðmerking með rauðu bleki, 1-7.

Kveraskipan

Brotin eru saumuð á móttök.

  • Blað 1 og það sem eftir er af blaði 2 eru saman á móttaki.
  • Blöð 3 og 4 mynda tvinn og eru sömuleiðis saman á móttaki.
  • Blöð 5r-7v eru fest hvert á sitt móttak.

Umbrot

  • Tvídálka.
  • Leturflötur er 206/220 null x 190/200 null.
  • Línufjöldi ca 33-44.

Ástand

  • Blöðin eru öll sködduð og bera þess merki að hafa verið notuð í band. Af blaði 2 er aðeins eftir strimill næst kili. Blöð 4-6 hafa verið skorin við ytri, innri og neðri spássíur. Blað 5 er af þessum sökum um helmingi minna en það var upprunalega. Blað 7 er fúið við efri hluta innri dálks.

Skrifarar og skrift

  • Skrifarar eru þrír að mati John McKinnells (sbr. McKinnell, John 1970:304-338 (sjá nmgr. 6: 306)). Textaskrift.

Skreytingar

  • Eyður eru fyrir upphafsstafi, sbr. t.d. 1r og 3r. Leifar af lituðum upphafsstöfum og fyrirsögnum eru ekki sjáanlegar.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

  • Titill Harðar sögu er með hendi Höskuldar Hákonarsonar prests en hann kemur við fjölda skjala úr Þingeyjarsýslu og Skagafjarðarsýslu á árunum milli 1391-1409 (sjá McKinnell, John 1970, bls. 304 og 305 (nmgr.4) 7r.
  • Athugasemdir Árna Magnússonar um aðföng t.d. á blöðum 1r og á 5v.
  • Einnig hefur verið ritað á efri spássíur blaða 5r og 6r (Úr Vatnshyrnu) og á neðri spássíu blaðs 7r hefur verið skrifað Úr Harðarsögu.

Band

Band (282 null x 263 null x 10 null) frá 1959.

Pappakápa. Saumað á móttök.

Fylgigögn

  • Fastur seðill (189 mm x 156 mm) með hendi Árna Magnússonar. Á honum eru upplýsingar um feril (Komið til mín frá monsieur Ormi Daðasyni 1721. Er: úr Þórðar hreðu sögu, öðruvísi en öll önnur exemplaria, og er egregium fragmentum. Um Þórð í Djúpafirði. [Meira með hendi frá síðari tíma.]. Seðillinn er límdur á móttak með blaði 1.
  • Laus seðill með upplýsingum um forvörslu bands.

Uppruni og ferill

Uppruni

Handritið er skrifað á Íslandi nánar til tekið á Norðurlandi (sbr. McKinnell, John 1970:304-338 ).

Það er tímasett til ca 1390-1425 (sbr. ONPRegistre 1989:454 ). Kålund tímasetti til ca 1400 ( Katalog I 1889:717 ).

Brotin voru áður talin hafa tilheyrt Vatnshyrnu, stórri skinnbók sem lenti í bókasafni Resens og síðan í Háskólabókhlöðunni í Kaupmannahöfn og brann þar 1728 (sbr. Katalog (I) 1889:718 ). Stefán Karlsson hefur sýnt fram á að svo var ekki, heldur muni þau vera úr öðru handriti, að nokkru leyti sama efnis ( Stefán Karlsson 1970:282-283 ). John McKinnell telur þau geta hafa verið í sömu bók og AM 445 b og c I 4to, svokallaðri Pseudo-Vatnshyrnu (sbr. McKinnell, John 1970:304-338 ).

Ferill

Árni Magnússon fékk flest blöðin og kannski öll frá Ormi Daðasyni, blað 1-2 og 5 árið 1716 (sbr. athugasemdir á blöðum 1r og 5v) og blöð 3-4 árið 1721 (sbr. seðil).

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 6. maí 1975.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

ÞS jók við 2. nóvember 2009. VH skráði handritið 10. mars 2009; lagfærði í janúar 2011, DKÞ skráði handritið 12. janúar 2003, Kålund gekk frá handritinu til skráningar 10. október 1887 Katalog I bls. 717-718 (nr. 1406), GV sló inn texta af seðlum Árna Magnússonar undir umsjón ÞS og með hliðsjón af gögnum frá MJ.

Viðgerðarsaga

Viðgert af Birgitte Dall 1959.

Myndir af handritinu

  • Stafrænar myndir á www.sagnanet.is.
  • Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.
  • Svart-hvítar ljósmyndir á Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi, gefnar af Arne Mann Nielsen í janúar 1974.
  • Svart-hvítar ljósmyndir af bl. 3r-4v á Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi.

Notaskrá

Höfundur: Jakobsen, Alfred
Titill: Gripla, De to redaksjonene av Harðar saga
Umfang: 7
Titill: , Harðar saga. Bárðar saga. Þorskfirðinga saga. Flóamanna saga. [...et al.]
Ritstjóri / Útgefandi: Bjarni Vilhjálmsson, Þórhallur Vilmundarson
Umfang: 13
Höfundur: Seip, Didrik Arup
Titill: Palæografi. B. Norge og Island, Nordisk kultur
Umfang: 28:B
Höfundur: Ward, Elizabeth I.
Titill: Gripla, Completing Þórðar saga hreðu
Umfang: 27
Höfundur: Scott, Forrest S.
Titill: , Eyrbyggja saga. The vellum tradition
Umfang: 18
Höfundur: Guðrún Ása Grímsdóttir, Sveinbjörn Rafnsson
Titill: Frásögur um fornaldarleifar 1817-1823, Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi : Rit
Umfang: 24:1-2
Höfundur: Guðrún Ása Grímsdóttir, Þórður Jónsson í Hítardal
Titill: Ættartölusafnrit séra Þórðar Jónssonar í Hítardal I-II
Höfundur: Guðvarður Már Gunnlaugsson
Titill: Sýnisbók íslenskrar skriftar
Höfundur: Joseph, Herbert S.
Titill: The Þáttr and the theory of saga origins, Arkiv för nordisk filologi
Umfang: 87
Höfundur: McKinnell, John
Titill: The reconstruction of Pseudo-Vatnshyrna,
Umfang: s. 304-338
Höfundur: Jón Helgason
Titill: , Syv sagablade (AM 162 C fol, bl. 1-7)
Umfang: s. 1-97
Höfundur: Jón Helgason
Titill: , Sylloge sagarum. Resenii bibliotheca. Vatnshyrna
Umfang: s. 9-53
Titill: , Eyfirðinga sögur
Ritstjóri / Útgefandi: Jónas Kristjánsson
Umfang: 9
Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Titill: Ordbog over det norrøne prosasprog: Registre
Ritstjóri / Útgefandi: Den arnamagnæanske kommision
Höfundur: Stefán Karlsson
Titill: , Um Vatnshyrnu
Umfang: s. 279-303
Höfundur: Stefán Karlsson
Titill: Sagas of Icelandic bishops. Fragments of eight manuscripts, Introduction
Umfang: s. 9-61
Titill: , Harðar saga
Ritstjóri / Útgefandi: Hast, Sture
Umfang: 6
Höfundur: Ólafur Halldórsson
Titill: Grænland í miðaldaritum
Höfundur: Ólafur Halldórsson
Titill: Tímarit Háskóla Íslands, Á afmæli Flateyjarbókar
Umfang: 1
Lýsigögn
×

Lýsigögn