„Af Þorsteini Austfirðing“
„Þorsteinn hét maður austfirskur að ætt …“
„… og þótti vera hinn mesti gæfumaður. Og lýkst þar frá honum að segja.“
Handritið hefur verið blaðmerkt síðar með rauðu bleki 1-5. Blað 6 er ómerkt.
Þrjú tvinn.
Með hendi Árna Magnússonar, árfljótaskrift.
Band frá árunum 1772-1780 (215 mm x 168 mm x 3 mm). Pappaspjöld klædd handunnum pappír. Safnmark og titill skrifað framan á kápu. Blár safnmarksmiði á kili. Spjaldblöð úr prentaðri bók.
Fastur seðill (151 mm x 109 mm) með hendi Árna Magnússonar, með upplýsingum um forritið: „Þessi þáttur er ritaður eftir hendi síra Jóns í Villingaholti, og stóð hann í bók í folio, er ég fékk af sýslumanninum Jóni Þorlákssyni. Þátturinn með hendi síra Jóns er nú fortærður, eftir að þetta mitt er, qvod ad verba, accuratissimè þar við confererað. Literaturam hefi ég alls staðar forbetrað. Verte. Þessi þáttur var og í bók með hendi Sigurðar á Ferju, eldri en 1683 er ég keypti af nefndum Sigurði 1711 og tók í sundur. Var hann þar auðsýnilega ritaður eftir eins exemplari sem þetta er, en sums stadar miskrifaður. Hirti ég því eigi um hann, og reif hann í sundur.“
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 9. mars 1978.
Matthias Larsen Bloch batt á árunum 1772-1780.