Band frá árunum 1772-1780 (214 mm x 167 mm x 3 mm). Pappaspjöld klædd handunnum pappír. Safnmark og titill skrifað framan á kápu. Blár safnmarksmiði á kili. Spjaldblöð úr prentaðri bók.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 3. mars 1978.
Matthias Larsen Bloch batt á árunum 1772-1780.
„Ævintýr af Þorsteini austfirskum“
„Í Austfjörðum óx upp sá maður er Þorsteinn hét …“
„… Og var löngum með kóngi.“
Lyktar þar þetta ævintýr.
Handritið hefur verið blaðmerkt síðar með rauðu bleki, 1-3.
Tvö tvinn. Aftasta blaðið þjónar sem saurblað og er hinu handritinu skotið inn á milli þess og fremstu blaðanna.
Með hendi Árna Magnússonar, árfljótaskrift.
Leiðréttingar með hendi skrifara á bl. 2v-3r.
Fastur seðill (151 mm x 104 mm) milli tveggja fremstu blaðanna með hendi Árna Magnússonar, með upplýsingum um forrit þessa handrits: „þesse þattur er ritadur epter hende Sr jons i Villingahollte, og stöd hann i bok i folio er eg feck af syslumannenum Jone Þorlakssyne. þatturenn med hendi Sr Jons, er nu fortærdur, apter ad þetta mitt er accuratissimè qvod ad verba, þar vid confererad. literaturam hefi eg allstadar forbetrad. verte. þesse þattr var og i bok med hendi Sigurdar ä Feriu elldri enn 1683. er eg keypte af nefndum Sigurde 1711. og tok i sundr. var hann þar audsynilega ritadur epter eins Exemplare sem þetta er, enn sumstadar misskrifadur. hiedte eg þvi eigi um hanm, og reif hann i sundr.“
Handritið var skrifað í Kaupmannahöfn. Það er uppskrift Árna Magnússonar eftir handriti séra Jóns Erlendssonar í Villingaholti, sem var í bók sem Árni fékk frá Jóni Þorlákssyni sýslumanni (sbr. seðil, sjá einnig AM 562 e og i 4to). Þetta handrit Jóns er nú glatað. Kålund tímasetti uppskrift Árna til ca 1700 ( Katalog I 1889:715 ).
„Söguþáttur Þorsteins forvitna“
„[Þ]orsteinn hét maður íslenskur er kom á fund Haralds kóngs Sigurðssonar …“
„… skildust þeir kóngur með hinni mestu vináttu.“
Og lýkur hér frá Þorsteini hinum forvitna.
Óþekktur skrifari, fljótaskrift.