Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM 555 h 4to

Stjörnu-Odda draumur ; Danmörk, 1686

Tungumál textans
íslenska

Innihald

1 (1r-10r)
Stjörnu-Odda draumur
Titill í handriti

Draumur Stjörnu-Odda.

Upphaf

Þórður hét maður er bjó í Múla …

Niðurlag

… og ekki undrast þótt kveðskapurinn sé stirður því að í svefni var kveðið.

2 (10v)
Bergbúa þáttur
Upphaf

… af veginum en farið hafa. Þykir mér hættligt í náttmyrkri

Niðurlag

skulum við biðjast fyrir því að …

Skrifaraklausa

Skrifað eftir mjög gamalli membrana: Kaupmannahöfn, anno 1686.

Athugasemd

Efni Bergbúa þáttar er hér aðeins u.þ.b. tólf línur framarlega úr þættinum á efri hluta blaðs 10v en neðri hluti blaðs 10 hefur verið skorinn burtu. Upphaf þáttarins hefur því líklega verið á neðri hluta blaðs 10r.

Niðurlagið er í AM 564 c 4to.

Uppskrift eftir Vatnshyrnu (sbr. Stefán Karlsson 2000, bls. 336-359 ).

Lýsing á handriti

Blaðefni
Pappír.
Blaðfjöldi
i + 11 + i blöð (205 mm x 156-159 mm) þar með talið blað 10bis sem blað 10 var áður límt á en hefur nú verið losað frá.
Tölusetning blaða

Síðari tíma blaðmerking með blýanti 1-10.

Kveraskipan

Tvö kver.

  • Kver I: blöð 1-8, 4 tvinn.
  • Kver II: blöð 9-11; 3 stök blöð.
  • Blöð 9-11 eru límd á pappírsföls sem síðan eru saumuð á móttak.

Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca 155-165 null x 100-107 null.
  • Línufjöldi er ca 28.
  • Kaflaskipting; tíu kaflar.
  • Kaflatal á spássíum (sbr. blað 6v-7r).
  • .v. á spássíum er tilvísun í vísur í textanum (sjá blað 9).

Ástand

Eftir sögulok á blaði 10r hefur neðri helmingur blaðsins verið skorinn af og stubburinn límdur á hvítt blað sem nú er laust frá.

Skrifarar og skrift

Skrifað með hendi Árna Magnússonar; léttiskrift.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

  • Leiðréttingar/lesbrigði með hendi skrifara eru á blaði 7r og 9r.
  • Athugasemd Árna Magnússonar um forrit sitt.

Band

Band (215 null x 180 null x 10 null) frá 1976.

Pappaspjöld klædd fínofnum líndúk. Grófari dúkur á kili og hornum. Saumað á móttök; saurblöð tilheyra þessu bandi.

Eldra pappaband (211 null x 164 null x 3 null) er frá ca 1772-1780.

Spjöld og kjölur eru klædd handunnum pappír. Safnmark (og titill) er skráð á fremra kápuspjald. Blár safnmarksmiði er á kili.

Fylgigögn

  • Laus miði með upplýsingum um forvörslu bands.

Uppruni og ferill

Uppruni

Handritið er skrifað í Kaupmannahöfn 1686 (sbr. Árna Magnússon á blaði 1r) sennilega eftir Vatnshyrnu, handriti frá 14. öld sem nú er glatað (sjá Stefán Karlsson 1970: 2000; 336-359).

Það var áður í sömu bók og AM 564 c 4to sem einnig er talin vera uppskrift Árna Magnússonar eftir Vatnshyrnu.

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 19. apríl 1977.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

VH skráði handritið 9. mars 2009; lagfærði í janúar 2011, ÞS skráði 10. desember 2001, Kålund gekk frá handritinu til skráningar 23. september 1887 Katalog I; bls. 705 (nr. 1377).

Viðgerðarsaga

Viðgert og bundið af Birgitte Dall í mars 1976. Eldra band fylgir í öskju með handritinu.

Bundið af Matthias Larsen Bloch ca 1772-1780.

Myndir af handritinu

  • Stafrænar myndir á www.sagnanet.is.
  • Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.
  • Svart-hvítar ljósmyndir á Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi, sem keypti þær af Arne Mann Nielsen í maí 1974.

Notaskrá

Titill: , Harðar saga. Bárðar saga. Þorskfirðinga saga. Flóamanna saga. [...et al.]
Ritstjóri / Útgefandi: Bjarni Vilhjálmsson, Þórhallur Vilmundarson
Umfang: 13
Höfundur: McKinnell, John
Titill: The reconstruction of Pseudo-Vatnshyrna,
Umfang: s. 304-338
Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Höfundur: Már Jónsson
Titill: Árni Magnússon : ævisaga
Höfundur: Stefán Karlsson
Titill: , Um Vatnshyrnu
Umfang: s. 279-303
Höfundur: Stefán Karlsson
Titill: Gripla, Misskilin orð og misrituð í Guðmundar sögum
Umfang: II
Lýsigögn
×

Lýsigögn