„Hér byrjast Ljósvetninga saga eður Reykdælu“
„Viðureign þingmanna Þorgeirs goða …“
„… en þrællinn snýst við og spyr ef hann vill nokkuð leggja til bóta.“
Handritið hefur verið blaðmerkt síðar með rauðu bleki 1-42.
Sex kver.
Óþekktur skrifari, fljótaskrift.
Band frá því í mars 1976 (218 mm x 187 mm x 17 mm). Pappaspjöld klædd fínofnum líndúk, grófari dúkur á kili og hornum. Saumað á móttök. Saurblöð tilheyra bandi.
Handritið liggur í öskju ásamt eldra bandi.
Handritið var skrifað á Íslandi. Það er tímasett til loka 17. aldar í Katalog I , bls. 701.
Árni Magnússon fékk frá Skúla Ólafssyni árið 1700 (sjá seðil).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 19. apríl 1977.
Birgitte Dall gerði við og batt í mars 1976.
Matthías Larsen Bloch batt í pappa á árunum 1772-1780. Það band fylgir í öskju með handritinu.