„Hér byrjar Hallfreðs sögu“
„Þorvaldur hét maður og var skiljandi …“
„… og er margt manna frá honum komið.“
… og lýkur hér sögu Hallfreðs vandræðaskálds.
Handritið hefur verið blaðmerkt síðar með rauðu bleki 1-45. Blað 46 er ómerkt.
Sex kver.
Með hendi Jóns Sigurðssonar í Víðidalstungu, kansellískrift.
Band frá árunum 1772-1780 (219 mm x 169 mm x 12 mm). Pappaspjöld klædd handunnum pappír. Saumað með hamptaumum. Safnmark og titill skrifað framan á kápu. Blár safnmarksmiði á kili. Spjaldblöð úr prentaðri bók.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 15. október 1975.
Matthías Larsen Bloch batt á árunum 1772-1780.