Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM 553 b 4to

Orms þáttur Stórólfssonar ; Ísland, 1700-1725

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-26v)
Orms þáttur Stórólfssonar
Titill í handriti

Söguþáttur af Ormi Stórólfssyni

Upphaf

Hængur hét maður son Ketils Naumdæla …

Niðurlag

… og hélt vel trú sína

Baktitill

og lýkur þar þætti Orms Stórólfssonar.

Lýsing á handriti

Blaðefni
Pappír.
Blaðfjöldi
26 blöð (208 mm x 165 mm). Auð blöð: 26v og neðri hluti 26r.
Tölusetning blaða

Handritið hefur verið blaðmerkt síðar með rauðu bleki, 1-26.

Kveraskipan

Þrjú kver.

  • Kver I: bl. 1-8, 4 tvinn.
  • Kver II: bl. 9-16, 4 tvinn.
  • Kver III: bl. 17-26, 5 tvinn.

Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca 140 mm x 110 mm.
  • Línufjöldi er 18.
  • Vísuorð eru sér um línu.
  • Sagan endar í totu á bl. 26r.

Ástand
Blek úr upphafsstaf hefur smitast í gegn á blað 1v.
Skrifarar og skrift

Með hendi Jóns Sigurðssonar í Víðidalstungu, kansellískrift.

Skreytingar

Fyrirsögn með stærra letri og upphafsstafir í nafni pennaflúraðir.

Upphafsstafur (H) feitletraður og pennaflúraður (bl. 1r). Aðrir upphafsstafir kafla feitletraðir.

Band

Band frá árunum 1772-1780 (215 mm x 170 mm x 7 mm). Pappaspjöld klædd handunnum pappír. Saumað með hamptaumum. Safnmark og titill skrifað framan á kápu. Blár safnmarksmiði á kili. Spjaldblöð úr prentaðri bók.

Uppruni og ferill

Uppruni

Handritið var skrifað á Íslandi. Það er tímasett til upphafs 18. aldar í  Katalog I , bls. 698.

Samkvæmt AM 477 fol. átti Harðar saga líka að tilheyra þessu handriti en hana vantar nú.

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 18. nóvember 1977.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

  • ÞS skráði samkvæmt reglum TEI P53. apríl 2009 og síðar.
  • ÞS færði inn grunnupplýsingar 30. október 2001.
  • Kålund gekk frá handritinu til skráningar 17. september 1887(sjá Katalog I 1889:698 (nr. 1351) .

Viðgerðarsaga

Matthías Larsen Bloch batt á árunum 1772-1780.

Myndir af handritinu

  • Stafrænar ljósmyndir á www.sagnanet.is.
  • Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Titill: Harðar saga,
Ritstjóri / Útgefandi: Hast, Sture
Umfang: 6
Lýsigögn
×

Lýsigögn