Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM 553 a 4to

Hávarðar saga Ísfirðings ; Ísland, 1700-1725

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-76r)
Hávarðar saga Ísfirðings
Titill í handriti

Sagan af Hávarði Ísfirðingi og syni hans Ólafi Bjarnyl

Vensl

Skrifað eftir AM 160 fol. (B.K.Þ.).

Samkvæmt AM 477 fol. átti Harðar saga líka að tilheyra þessu handriti en hana vantar nú.

>

Upphaf

Það er upphaf þessarar sögu að Þorbjörn hét maður …

Niðurlag

… þótti verið hafa hið mesta mikilmenni og lúku [!] vér þar nú þesssari sögu að sinni með þessu efni.

Athugasemd

Blöð 13v (að mestu leyti), 14r-15r eru auð til að tákna eyðu í forriti.

Lýsing á handriti

Blaðefni
Pappír.
Blaðfjöldi
76 blöð (208 mm x 162-164 mm). Blað 76v er autt.
Tölusetning blaða

Handritið hefur verið blaðmerkt síðar með rauðu bleki, 1-76.

Kveraskipan

Tíu kver.

  • Kver I: bl. 1-8, 4 tvinn.
  • Kver II: bl. 9-16, 4 tvinn.
  • Kver III: bl. 17-24, 4 tvinn.
  • Kver IV: bl. 25-32, 4 tvinn.
  • Kver V: bl. 33-40, 4 tvinn.
  • Kver VI: bl. 41-48, 4 tvinn.
  • Kver VII: bl. 49-56, 4 tvinn.
  • Kver VIII: bl. 57-64, 4 tvinn.
  • Kver IX: bl. 65-72, 4 tvinn.
  • Kver X: bl. 73-76, 2 tvinn.

Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca 140-145 mm x 103-105 mm.
  • Línufjöldi er 18.
  • Vísuorð eru sér um línu (sjá til dæmis bl. 62v).
  • Griporð á versósíðu aftasta blaðs í kveri (8v, 16v, 24v, 32v, 8v, 40v, 48v, 56v, 64v, 72v).
  • Sagan endar í totu á bl. 76r.

Ástand

Bleksmitun er dálítil en hefur ekki áhrif á texta.

Skrifarar og skrift

Með hendi Jóns Sigurðssonar í Víðidalstungu, kansellískrift.

Skreytingar

Upphafsstafir kafla eru oftast stærri en meginletur og feitletraðir. Stærstur er upphafsstafur sögunnar á bl. 1r.

Band

Band frá árunum 1772-1780 (205 mm x 170 mm x 15 mm). Pappaspjöld klædd handunnum pappír. Saumað með hamptaumum. Safnmark og titill skrifað framan á kápu. Blár safnmarksmiði á kili. Spjaldblöð úr prentaðri bók.

Fylgigögn

Laus seðill með upplýsingum um uppruna, dagsettur 3. nóvember 1922.

Uppruni og ferill

Uppruni

Handritið var skrifað á Íslandi. Það er tímasett til upphafs 18. aldar í  Katalog I , bls. 698.

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 15. október 1975.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

  • ÞS skráði samkvæmt reglum TEI P531. mars 2009 og síðar.
  • ÞS færði inn grunnupplýsingar 30. október 2001.
  • Kålund gekk frá handritinu til skráningar 17. september 1887(sjá Katalog I 1889:698 (nr. 1350) .

Viðgerðarsaga

Matthías Larsen Bloch batt á árunum 1772-1780.

Myndir af handritinu

  • Stafrænar ljósmyndir á www.sagnanet.is.
  • Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Titill: Harðar saga,
Ritstjóri / Útgefandi: Hast, Sture
Umfang: 6
Lýsigögn
×

Lýsigögn