„Sagan af Hávarði Ísfirðingi og syni hans Ólafi Bjarnyl“
Skrifað eftir AM 160 fol. (B.K.Þ.). Samkvæmt AM 477 fol. átti Harðar saga líka að tilheyra þessu handriti en hana vantar nú.
„Það er upphaf þessarar sögu að Þorbjörn hét maður …“
„… þótti verið hafa hið mesta mikilmenni og lúku [!] vér þar nú þesssari sögu að sinni með þessu efni.“
Handritið hefur verið blaðmerkt síðar með rauðu bleki, 1-76.
Tíu kver.
Bleksmitun er dálítil en hefur ekki áhrif á texta.
Með hendi Jóns Sigurðssonar í Víðidalstungu, kansellískrift.
Upphafsstafir kafla eru oftast stærri en meginletur og feitletraðir. Stærstur er upphafsstafur sögunnar á bl. 1r.
Band frá árunum 1772-1780 (205 mm x 170 mm x 15 mm). Pappaspjöld klædd handunnum pappír. Saumað með hamptaumum. Safnmark og titill skrifað framan á kápu. Blár safnmarksmiði á kili. Spjaldblöð úr prentaðri bók.
Laus seðill með upplýsingum um uppruna, dagsettur 3. nóvember 1922.
Handritið var skrifað á Íslandi. Það er tímasett til upphafs 18. aldar í Katalog I , bls. 698.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 15. október 1975.
Matthías Larsen Bloch batt á árunum 1772-1780.