Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM 552 n 4to

Hrafns saga Sveinbjarnarsonar ; Ísland, 1650-1699

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-22r)
Hrafns saga Sveinbjarnarsonar
Titill í handriti

Saga af Hrafni Sveinbjarnarsyni Vestfirðingi sem Sturla hinn fróði lætur fylgja Íslendingasögunum miklu

Vensl

Handritið er skrifað eftir AM 557 4to.

Upphaf

Sveinbjörn hét maður, son Bárðar svarta …

Niðurlag

…bjó síðan í Vatnsfirði meðan hann lifði og lýkur hér sögunni.

Lýsing á handriti

Blaðefni
Pappír.
Blaðfjöldi
22 blöð (193 mm x 165 mm). Bl. 22v upprunalega autt.
Tölusetning blaða

Blaðmerkt síðar með rauðu bleki 1-22.

Kveraskipan

Þrjú kver.

  • Kver I: bl. 1-8, 4 tvinn.
  • Kver II: bl. 9-16, 4 tvinn.
  • Kver III: bl. 17-22, 3 tvinn.

Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca 157-163 mm x 130 mm.
  • Línufjöldi er 28-30.
  • Griporð.
  • Tímatal sögunnar á spássíum o.fl.

Skrifarar og skrift

Að mestu með hendi Björns Jónssonar á Skarðsá, blendingsskrift undir áhrifum frá fljótaskrift.

Nokkrar línur á bl. 3v, 12r og 13r með annarri hendi, blendingsskrift.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

  • Spássíugreinar, einkum um tímatal en einnig orðskýringar, með hendi skrifara.
  • Nöfn og pennaprufur á bl. 22v.

Band

Band frá árunum 1772-1780 (198 mm x 169 mm x 7 mm). Saumað með hamptaumum í pappaspjöld. Safnmark og titill skrifað framan á kápu. Blár safnmarksmiði á kili.

Fylgigögn

  • Fastur seðill (tvinn, 160 mm x 140 mm) fremst með hendi Árna Magnússonar með efnisyfirliti yfir 11 sögur sem verið hafa saman í bók: 1. su fysta fregn af Staturno i Krit 1641. (med hende Birn ä Skardzä). 2. Sæmundar Edda (manu ejusdem.) 3. Saga af Gunnlauge ormstungu og skalld Hrafne, manu ejusdem. desunt multa in calea. 4. Hallfredar saga, vantar upphafid. manu ejusdem. 5. saga af Hrafne Sveinbiarnarsyne, manu ejusdem 6. Kialnesinga saga (med hendi sem eg eigi þecke) 7. Ketils saga hængs og rvar Oddz, (med smu hendi, sem og eigi þecke.) 8. saga af Havarde hallta, (med hendi Biorns ä Skardzä) 9. Eigilsdrapa Skallagrimssonar, med Commentario Biorns ä Skardzä (og med hans eigen hende) 10. Biorn a Skardzä um Eddubækur (med hans eigen hende) ii. Rimbegla med hendi Biorns ä Skardzä. Aftara blaðið er autt.
  • Laus seðill frá Kaupmannahöfn með upplýsingum um forvörslu.

Uppruni og ferill

Uppruni

Ferill

Bókina hefur átt Oddur Sigurðsson lögmaður og hefur Árni Magnússon líklega fengið hana að láni og ekki skilað (E.G.P. 1998).

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 13. október 1978.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

  • ÞS skráði samkvæmt reglum TEI P530. mars 2009 og síðar.
  • ÞS færði inn grunnupplýsingar 29. október 2001.
  • Kålund gekk frá handritinu til skráningar 16. september 1887(sjá Katalog I 1889:697 (nr. 1345) .

    GV sló inn texta af seðlum Árna Magnússonar undir umsjón ÞS og með hliðsjón af gögnum frá MJ.

Viðgerðarsaga

Viðgert af Birgitte Dall 21. ágúst 1975.

Matthías Larsen Bloch batt á árunum 1772-1780.

Myndir af handritinu

  • Stafrænar ljósmyndir á www.sagnanet.is.
  • Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.
  • Svart-hvítar ljósmyndir á Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi, gerðar af Jóhönnu Ólafsdóttur árið 1994.

Notaskrá

Titill: , Membrana Regia Deperdita
Ritstjóri / Útgefandi: Loth, Agnete
Umfang: 5
Titill: Hrafns saga Sveinbjarnarsonar. B-redaktionen,
Ritstjóri / Útgefandi: Hasle, Annette
Umfang: 25
Höfundur: Kjeldsen, Alex Speed
Titill: , Filologiske studier i kongesagahåndskriftet Morkinskinna
Umfang: Supplementum 8
Höfundur: Haraldur Bernharðsson
Titill: Málfræðirannsóknir,
Umfang: 11
Höfundur: Haraldur Bernharðsson
Titill: Gripla, Þykkja og þykja. Hljóðbeygingarvíxl einfölduð
Umfang: 15
Höfundur: Knirk, James E.
Titill: New manuscript readings in Gunnlaugs saga ormstungu,
Umfang: s. 141-148
Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Lýsigögn
×

Lýsigögn