Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM 552 l 4to

Gunnlaugs saga ormstungu ; Ísland, 1600-1650

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-12v)
Gunnlaugs saga ormstungu
Titill í handriti

Saga af Gunnlaugi ormstungu og Skáld-Hrafni Íslendingum

Upphaf

Þorsteinn hét maður, son Egils Skalla-Grímssonar …

Niðurlag

… þann greiða er þú vilt hafa …

Athugasemd

Ófullgerð uppskrift.

Hallfreðar saga vandræðaskálds sýnist hafa fylgt á eftir blaði 15 (sbr. id est uppkast sögu Hallfreðs vandræðaskálds vantar hér (neðst á bl. 15v).

Lýsing á handriti

Blaðefni
Pappír.
Blaðfjöldi
15 blöð (193 mm x 165 mm). Auð blöð: 13r, 14r og neðri hluti 12v. Bl. 13r-15v upprunalega auð.
Tölusetning blaða

Handritið hefur verið blaðmerkt síðar, 1-15.

Kveraskipan

Tvö kver.

  • Kver I: bl. 1-8, 4 tvinn.
  • Kver II: bl. 9-15, 3 tvinn og stakt blað (bl. 11).

Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca 165-170 mm x 130-135 mm.
  • Línufjöldi er ca 28-32.
  • Griporð.
  • Vísur eru merktar á spássíum.
  • Tímatal og spássíugreinar á spássíum.

Skrifarar og skrift

Með hendi Björns Jónssonar á Skarðsá, blendingsskrift undir áhrifum frá fljótaskrift.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

  • Á bl. 13v eru þrjár lausavísur og er ein af þeim á þýsku. Upphöf: Fyrst vil eg mætum musti, Die Gottes Gnade alleins, Þekkir þú Þormóð hinn blakka. Þar undir er nafnið Guðmundar Guðmundssonar ásamt dagsetningunni Copenhagen 10. mars 1664. Kålund telur að nafnið eigi við um sonarson Jóns lærða, fremur en Guðmund þann sem vann við sænska antikvitetskollegíið, svo sem talið er í Íslendingasögum II.
  • Á blaði 14v eru nöfnin Jón Þorláksson og Hans von Ahlenfeldt general-lieutenants og sama dagsetning og á bl. 13v. Einnig pennaprufur og klausur.
  • Á bl. 15r er dönsk bæn.
  • Á bl. 15v er athugasemd um að Hallfreðar sögu vanti.

Band

Band frá árunum 1772-1780 (198 mm x 170 mm x 6 mm). Saumað með hamptaumum í pappaspjöld. Safnmark og titill skrifað framan á kápu. Blár safnmarksmiði á kili.

Uppruni og ferill

Uppruni

Ferill

Bókina hefur átt Oddur Sigurðsson lögmaður og hefur Árni Magnússon líklega fengið hana að láni og ekki skilað (E.G.P. 1998).

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 7. október 1975.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

  • ÞS skráði samkvæmt reglum TEI P530. mars 2009 og síðar.
  • ÞS færði inn grunnupplýsingar 29. október 2001.
  • Kålund gekk frá handritinu til skráningar 16. september 1887(sjá Katalog I 1889:696 (nr. 1343) .

Viðgerðarsaga

Matthías Larsen Bloch batt á árunum 1772-1780.

Myndir af handritinu

  • Stafrænar ljósmyndir á www.sagnanet.is.
  • Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.
  • Stafrænar myndir á Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi, sem gerðar eru af Jóhönnu Ólafsdóttur 1994.

Notaskrá

Lýsigögn
×

Lýsigögn