„Saga af Gísla Súrssyni og Sýrdælum“
„Þegar Hákon kóngur Aðalsteinsfóstri réð fyrir Noregi …“
„… og eru miklir menn af honum komnir“
og lúkum vér svo sögu þess frækna manns Gísla Súrssonar.
Upprunalegt niðurlag vantar. Á bl. 1r er niðurlag annars efnis útkrassað og ólæsilegt.
Handritið hefur nýlega verið blaðmerkt með blýanti, 1-22. Blað 23 er ótölusett.
Fjögur kver.
Með hendi séra Ólafs Gíslasonar á Hofi í Vopnafirði, fljótaskrift.
Band frá mars 1977 (215 mm x 190 mm x 12 mm). Pappaspjöld klædd fínofnum líndúk. Grófari dúkur á kili og hornum. Saumað á móttök. Saurblöð tilheyra bandi.
Eldra pappaband frá árunum 1772-1780.
Árni Magnússon tók úr bók sem hann fékk hjá skrifara, séra Ólafi Gíslasyni, (sjá seðil).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 18. maí 1977.
Viðgert og bundið af Birgitte Dall í mars 1977.
Bundið á árunum 1772-1780 af Matthias Larsen Bloch.