Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM 506 4to

Sögubók ; Ísland, 1690-1710

Tungumál textans
íslenska

Innihald

1 (1r-38r (bls. 1-75))
Króka-Refs saga
Titill í handriti

Saga af Króka-Ref. I. Capitulo

Upphaf

Á dögum Hákonar kóngs Aðalsteinsfóstra bjó sá bóndi …

Niðurlag

… Og er margt göfugra manna frá honum komið.

Baktitill

Og lúkum vér þar sögu Króka-Refs.

1.1 (38v (bls. 76))
Um Grænlands byggð
Upphaf

Grænland var byggt af Eiríki hinum rauða …

Niðurlag

… Þessi saga finnst miklu lengri á þeim gömlu bókum heldur en hér er rituð etc.

Lýsing á handriti

Blaðefni
Pappír.
Blaðfjöldi
i + 38 + i blöð (210-212 mm x 162-165 mm).
Tölusetning blaða

Upprunaleg blaðsíðumerking 1-76.

Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca 155 mm x 130 mm.
  • Línufjöldi er 17-18.

Skrifarar og skrift

Með hendi Jóns Torfasonar, fljótaskrift.

Band

Band frá árunum 1880-1920 (214 mm x 170 mm x 12 mm). Pappaspjöld klædd pappír með dökkbláu og brúnleitu marmaramynstri. Dökkur líndúkur á kili og hornum. Blár safnmarksmiði á kili. Saurblöð tilheyra bandi.

Eldra band var með bókfellsklæðningu úr Jónsbókarhandriti frá því um 1600 með brotum úr reglum um sjúkraheimsóknir presta og greftrunarsiði.

Fylgigögn

Tveir fastir seðlar fremst með hendi Árna Magnússonar:

  • Seðill 1 (158 mm x 102 mm)með uppskrift af viðbótinni á bl. 38v. Fyrirsögn: Aftanvið Króka-Refs sögu með hendi sr. Jóns í Villingaholti. Grænland var bygt af Eirike hinum Rauda 14 ärum adr kristni var logtekin a jslandi. Enn þat fann hann fyrst sä madr sem Gunnbiorn hiet, oc vid hann er kient Gunnbiarnarsker, þat er VI. vikur siofar fra Geirfuglaskere undan Reykianese. oc skal sigla 12. vikur siofar fyrst sunnan þat oc svo rett til Garda ä Grænlandi. oc er þat biskupstöll þar. þeße saga finst miklu leingri i þeim gmlu bökum helldr enn fer er ritud..
  • Seðill (213 mm x 158 mm) með upplýsingum um uppruna handritsins á versóhlið. sennilega var upprunalega saurblað: þesse saga er skrifud epter bok i folio tilheyrande hans hój Excellence Hr Ulr. Chr. Güldenlewe hvar hun stendur med hendi Sr Jons Erlendssonar i Villingahollte.

Uppruni og ferill

Uppruni

Handritið var skrifað á Íslandi. Það er tímasett til um 1700 í  Katalog I , bls. 668.

Handritið er skrifað eftir bók með hendi Jóns Erlendssonar í Villingaholti sem var í eigu Ulriks Christians Gyldenløve (sbr. seðil). Það mun vera AM 160 fol. (sbr. Katalog I:668).

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 2. október 1975.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

Myndir af handritinu

  • Stafrænar myndir á www.sagnanet.is.
  • Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Lýsigögn
×

Lýsigögn