„Njála“
„Mörður hét maður er kallaður var Gígja …“
„… Son Brennu-Flosa var Kolbeinn, er ágætastur maður hefur verið einhvör í þeirri ætt.“
„Skrifað að Hítardal d. 27 febr. anno | 1697. I. p. h. s. “
Og ljúkum vér þar Brennu-Njáls sögu.
Skrifaraklausan er á blaði 154v.
Tuttugu kver.
Band (210 null x 175 null x 40 null) er frá 1700-1730.
Spjöld og kjölur eru klædd bókfelli. Blár safnmarksmiði á kili.
Handritið er skrifað á Íslandi 1697 (sjá blað 154v). Nákvæm og vönduð uppskrift af Kálfalækjarbók (AM 133 fol.) þegar hún var fyllri, en eyður eru fylltar eftir AM 137 fol. Lesbrigði eru tekin úr 137 og öðru pappírshandriti, e.t.v. AM 470 4to. Árni Magnússon taldi handritið mjög eigulegt og skrifaði ýmsar athugasemdir um það á fjögurra blaða kver í oktavó, fremst (sjá seðil).
Jón Halldórsson í Hítardal gaf Árna Magnússyni handritið árið 1711 þegar hann hafði látið gera nýja uppskrift.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 4. apríl 1975.
VH skráði handritið 3. apríl 2009: lagfærði í desember 2010, GI skráði 12. desember 2001, Kålund gekk frá handritinu til skráningar 26. maí 1887. Katalog I; bls. 651 (nr. 1236).
Bundið í Kaupmannahöfn á árunum 1700-1730.