„Hér byrjar sögu af Eigli Skallagrímssyni“
„Úlfur hét maður son Bjálfa og Hallberu …“
„… átti í víking sjö orustur.“
Hér er endir Egils sögu Skallagrímssonar.
Þrjátíu og eitt kver.
Með hendi Magnúsar Einarssonar á Vatnshorni (sbr. seðil), fljótaskrift.
Band (208 null x 168 null x 52 null) er frá 1700-1730.
Spjöld og kjölur eru klædd bókfelli.
Handritið er skrifað á Íslandi og tímasett til ca 1705-1727, en til upphafs 18. aldar í Katalog I , bls. 648. Árni Magnússon segir handritið uppskrift eftir fólióhandriti með hendi Jóns Erlendssonar í Villingaholti, í eigu Jóns Hákonarsonar (JS 28 fol.). Fyrrum átti það handrit Brynjólfur Sveinsson biskup en hann gaf það síðan Helgu Magnúsdóttur í Bræðratungu (sbr. seðil).
Árni Magnússon fékk handritið 1727 frá Magnúsi Einarssyni á Vatnshorni (sbr. seðil).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 19. desember 1992.
VH skráði handritið 1. apríl 2009; lagfærði í desember 2010, GI skráði 7. desember 2001. Kålund gekk frá handritinu til skráningar 23. maí 1886 Katalog I; bls. 648 (nr. 1229).
Yfirfarið í október 1992.
Innan á fremri kápu hefur Gundorph bókavörður skrifað að handritinu hafi verið skilað þann 26. janúar 1862 úr Konunglega bókasafninu þar sem það hafði verið skráð undir númerinu NKS 1737 4to.
Bundið í Kaupmannahöfn á árunum 1700-1730.