Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM 442 4to

Eyrbyggja saga ; Ísland, 1620-1670

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-76r (bls. 1-151))
Eyrbyggja saga
Titill í handriti

Hér byrjast Eyrbyggja, Álftfirðinga og Breiðvíkinga saga

Upphaf

Ketill flatnefur hét einn ágætur hersir í Noregi …

Niðurlag

… Stendur kirkjan í Sælingsdalstungu.

Baktitill

Hér lýkur um sinn sögu Þórsnesinga, Eyrbyggja og Álftfirðinga.

Athugasemd

  • Aftan við er vísa um söguna (sjá 76r). Hún er illlæsileg.
  • Blað 76v er autt.

Lýsing á handriti

Blaðefni
Pappír.
Blaðfjöldi
ii + 76 + i blöð (203 mm x 160-165 mm). Blað 75r er autt að hálfu og blað 76v er autt.
Tölusetning blaða

  • Upprunaleg blaðsíðumerking 1-151.

Kveraskipan

Tíu kver.

  • Kver I: saurblað + blöð 1-5, 3 tvinn.
  • Kver II: blöð 6-14, 4 tvinn + 1 stakt blað.
  • Kver III: blöð 15-22, 4 tvinn.
  • Kver IV: blöð 23-30, 4 tvinn.
  • Kver V: blöð 31-38, 4 tvinn.
  • Kver VI: blöð 39-46, 4 tvinn.
  • Kver VII: blöð 47-54, 4 tvinn.
  • Kver VIII: blöð 55-62, 4 tvinn.
  • Kver IX: blöð 63-70, 4 tvinn.
  • Kver X: blöð 71-76, 3 tvinn.

Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca (175-180 mm x 130-133 mm).
  • Línufjöldi er ca 22-23 og síðasta línan oft ekki full (sbr. 58r). Stundum er aðeins um tvö orð að ræða í þessari síðustu línu (sbr. 69v) eða jafnvel bara eitt, sbr. t.d. blað 70v). Þess ber að geta að hér er ekki um griporð að ræða heldur er textanum fram haldið í beinu framhaldi.

Ástand

  • Víða eru blettir á blöðum, skaða texta yfirleitt ekki að ráði (sjá t.d. blöð 4r, 54r 64v og 65r og 76r).

Skrifarar og skrift

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

  • Kaflamerkingar eru á spássíum (sjá t.d. blöð 19v-20r).

Band

Band (215 null x 187 null x 26 null) er frá nóvember 1975.

  • Pappaspjöld eru klædd fínofnum striga, grófari strigi er á hornum og kili. Saumað á móttök. Ytri saurblöð tilheyra þessu bandi.

Í eldra bandi voru spjöld og kjölur klædd bókfelli úr kirkjulegu latnesku handriti (tvídálka).  

Fylgigögn

  • Fastur seðill (138 mm x 122 mmmilli saurblaða fremst) með hendi Árna Magnússonar. Á honum eru upplýsingar um uppruna og aðföng: Eyrbyggia saga. Fra Sr Þorvalde Magnusssyne, 1705. ä Alþinge. Var þä i banda med laxdæla sgu.
  • Laus seðill með upplýsingum um forvörslu bands.

Uppruni og ferill

Uppruni

  • Handritið er skrifað á Íslandi og tímasett til ca 1620-1670, en til 17. aldar í  Katalog I , bls. 639. Það var áður í bók með Laxdæla sögu.
  • Uppskriftin er talin vera sömu gerðar og gerð hennar í Vatnshyrnu.

Ferill

Árni Magnússon fékk handritið á alþingi árið 1705 hjá séra Þorvarði Magnússyni.

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 28. janúar 1976.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

VH skráði handritið 27. mars 2009; lagfærði í nóvember 2010  GI skráði 27. nóvember 2001. Kålund gekk frá handritinu til skráningar 14. maí 1887. Katalog I , bls. 639 (nr. 1211).

Viðgerðarsaga

Viðgert og bundið af Birgitte Dall í nóvember 1975. Eldra band fylgdi.

Myndir af handritinu

  • Stafrænar myndir á www.sagnanet.is.
  • Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Titill: Eyrbyggja saga. Brands þáttr örva. Eiríks saga rauða. Grænlendinga saga. Grænlendinga þáttr,
Ritstjóri / Útgefandi: Einar Ól. Sveinsson, Matthías Þórðarson
Umfang: 4
Höfundur: Scott, Forrest S.
Titill: A paper manuscript of Eyrbyggja saga ÍB 180 8vo,
Umfang: s. 161-181
Höfundur: Scott, Forrest S.
Titill: Eyrbyggja saga. The vellum tradition,
Umfang: 18
Höfundur: Hreinn Benediktsson
Titill: Linguistic studies, historical and comparative
Höfundur: Louis-Jensen, Jonna
Titill: Verbet alýðask/ Ä lýðask,
Umfang: s. 140-145
Höfundur: Jónas Kristjánsson
Titill: Sagnalíf : sextán greinar um fornar bókmenntir, Learned style or saga style,
Ritstjóri / Útgefandi: Þórður Ingi Guðjónsson
Umfang: 90
Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Höfundur: Ólafur Halldórsson
Titill: Grænland í miðaldaritum
Lýsigögn
×
  • Land
  • Ísland
  • Staður
  • Reykjavík
  • Stofnun
  • Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
  • Vörsludeild
  • Handritasvið
  • Safn
  • Safn Árna Magnússonar
  • Safnmark
  • AM 442 4to
  • Fleiri myndir
  • LitaspjaldLitaspjald
  • XML
  • Opna XML færslu  
  • PDF í einni heild
  • UpplýsingarUpplýsingar
  • Athugasemdir
  • Gera athugasemdir við handrit  
Efni skjals
×
  1. Eyrbyggja saga

Lýsigögn