„Annala fragment | ab anno 1328. ad 1372. Vantar framan vid.“
Hluti af annál, nær yfir árin 1328-1372. Undir titilinn, á bl. 1r, bætir Árni Magnússon við: ſkrifad epter .3. kalfſkinns blỏdum in 4to. ſem fyrrum hafa vered i hỏndum Mag. Bryniolfs.
Ein hönd.
Einn seðill (150 mm x 86 mm) með hendi Árna Magnússonar: „Ekki hefur magister Brynjólfur brúkað þessa annála í hans annála Collection, svo mikið sem ég sjá kann* og hefur þó þetta fragment í hans höndum verið. *Það er víst. Ekkert þar úr er in harmonia annalium, sem hann hefur gjöra látið.“Einnig stendur á fremra saurblaði (merkt 1. blað): „Annáll fragment ab anno 1328 ad 1372. Vantar framan við. Skrifað eftir 3 kálfskinnsblöðum in 4to sem fyrrum hafa verið í höndum magisters Brynjólfs.“
Með hendi Árna Magnússonar og tímasett til um 1700 í Katalog I , bls. 628.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 13. júlí 1976.