Síðari tíma blaðmerking 1, 1bis -10.
Blöð eru saumuð á móttök í kverum eða stök; tvö kver, þrjú stök blöð:
Skinnið í handritinu er fremur illa farið. Blettir, göt og sprungur einkenna flest blöðin:
Band (340 null x 285 null x 22 null) er frá mars 1973.
Spjöld eru klædd fínofnum striga, leður er á hornum og kili. Saurblöð tilheyra þessu bandi.
Handritið er skrifað á Íslandi og að mestu með hendi séra Einars Hafliðasonar á Breiðabólstað í Vesturhópi (blöð 1r-9v (sjá um hendur hér fyrr)), og er uppskrift hans tímasett til ca 1362-1380, en blað 10r-10v til ca 1380-1390 (sjá ONPRegistre , bls. 453). Í Katalog I , bls. 625, er handritið tímasett til síðari hluta 14. aldar.
Árni Magnússon fékk handritið frá Jóni Vídalín biskupi, en þá hafði það lengi legið í Skálholti og eigendasaga þess óviss (sbr. athugasemd í AM 435 a 4to). Um annálana í AM 420 a-c segir Árni Magnússon í AM 435 a 4to: Þessi 3. annála volumina, eða fragmenta, láu í Skálholti eftir mag. Þórð og höfðu þar legið um hans tíð. Er óvíst hvert þau hafa verið kirkjunnar eign, eða óvart eftir orðið af bókum mag. Brynjólfs, í eigu Skálholts registri standa þau. Ég fékk þau af mag. Jóni Vídalín. Sjá einnig athugasemdir á seðlum í AM 428 4to. Sömuleiðis á seðlum í AM 427 a 4to.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 7. apríl 1976.
Viðgert og bundið af Birgitte Dall í mars 1973. Eldra band fylgdi ekki.