„hvad leid meigin hans. vm“
Vantar aftan af.
Bl. 2 endar á orðunum: framar at sino næme, en þar er eyða og hefst bl. 3 á orðunum: veitti hakonn konungur agæta veislu.
Blaðsíðumerkt af Jóni Sigurðssyni.
Eyður fyrir upphafsstafi og fyrirsagnir.
Handritið er skrifað með snoturri hendi, en af því hve það er orðið dökkt og máð er skriftin að hluta til ekki eins skýr.
Band frá því í mars 1966. mm x mm x mm
Þrír seðlar með hendi Árna Magnússonar
Tveir seðlar með hendi skrifara, hugsanlega Þórðar Þórðarsonar
Handritið er tímasett til um 1530 (sjá ONPRegistre , bls. 452), en til 16. aldar í Katalog I , bls. 607.
Árni Magnússon fékk handritið frá séra Þórði Jónssyni á Stað á Ölduhrygg. Áður átti það Halldór Þorbergsson. Halldór lánaði handritið ókenndum manni en frá honum komst það til Víkur á Akranesi. Þar náði því Jón Þórðarson á Bakka og fékk það síðan séra Þórði Jónssyni (sbr. seðla og AM 435 a 4to, bl. 83v).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 25. júlí 1973.
Viðgert og bundið í Kaupmannahöfn í mars 1966. Eldra band fylgdi ekki með.