Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM 380 4to

Hungurvaka og Þorkláks saga helga ; Ísland, 1600-1699

Tungumál textans
íslenska

Innihald

1 (1r-14v)
Hungurvaka
Titill í handriti

Hungurvaka

Upphaf

Bækling þennan kalla ég Hungurvöku …

Niðurlag

… og þolinmæði bæði við óhlýðna menn og rangláta.

Efnisorð
2 (15r-69v)
Þorláks saga helga
Titill í handriti

Hér hefur sögu af hinum heilaga Þorláki biskupi

Upphaf

Í þann tíma er stýrði Guðs kristni Innocentius páfi …

Niðurlag

… lofandi Guð og hinn heilaga Þorlák biskup.

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni
Pappír.
Blaðfjöldi
i + 87 + i blöð (184 mm x 153 mm). Þriðjungur blaðs 69v er auður og blað 58v er autt að hálfu. Blöð 70r-87v eru auð.
Tölusetning blaða

  • Blaðmerkt með blýanti 1-87.

Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca 160 null x 125-130 null.
  • Línufjöldi er ca 27-28.
  • WW á spássíu blaðs 12v til marks um vísu í textanum.
  • Ónúmeruð kaflaskipting er í Þorláks sögu helga.

Ástand

  • Blöð eru víða blettótt og skítug (sjá t.d. 1r og 15r).

Skrifarar og skrift

  • Með hendi Jóns Pálssonar.
  • Blendingsskrift.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

  • Spássíuskrif á stöku stað. Á spássíu blaðs 9r stendur t.d. Sigurður Jórsalafari. Á blaði 14 er ellefta leiðrétt á spássíu í tólfta svo dæmi séu tekin.

Band

Band (193 mm x 178 mm x 25 mm) frá 1979.

Pappaspjöld eru klædd fínofnum striga. Grófari dúkur á hornum og kili. Saumað á móttök.

Í eldra bandi voru spjöld og kjölur klædd bókfelli sem skrifað er á að innanverðu (þ.e. predikun á latínu).  

Fylgigögn

  • Seðill (176 mm x 144 mm) með hendi Árna Magnússonar: Þessar: Þorláks saga og Hungurvaka eru teknar úr bók sem ég fékk af Jóni Einarssyni á Hólum, og verið hefðu eign herra Þorláks Skúlasonar 1621. Síðan hafði Guðbrandur Þorláksson gefið hana Jóni (nokkrum) Jónssyni. Jón Jónsson fékk séra Þorsteini Jónssyni (á Eiðum) bókina 1662. En séra Þorsteinn Jónsson gaf hana Kristrúnu dóttur sinni 1678 á Eiðum (?). Confererat cum mea recenti membrana 4to sem og hafa verið eign herra Þorláks.
.

Uppruni og ferill

Uppruni

Handritið er skrifað á Íslandi og tímasett til 17. aldar í  Katalog I , bls. 594. Sögurnar voru áður í sömu bók og AM 404 4to, AM 446 4to og AM 458 4to.

Neðst á seðli segist Árni Magnússon hafa borið þetta handrit saman við skinnhandrit sem var í eigu Þorláks Skúlasonar biskups.

Ferill

Árni Magnússon fékk sögurnar úr bók frá Jóni Einarssyni á Hólum en hún hafði verið í eigu Þorláks Skúlasonar biskups 1641. Guðbrandur Þorláksson gaf svo bókina Jóni Jónssyni. Hann fékk hana síðan séra Þorsteini Jónssyni á Eiðum árið 1662. Séra Þorsteinn gaf hana dóttur sinni Kristrúnu 1678 (sbr. seðil).

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 26. febrúar 1987.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

VH skráði handritið 19. mars 2009; lagfærði í nóvember 2010, GI skráði 6. nóvember 2001, Kålund gekk frá handritinu til skráningar í nóvember 1886. Katalog I> bls. 594 (nr. 1132).

Viðgerðarsaga

Viðgert og bundið í maí til september 1979. Eldra band fylgir ekki.

Myndir af handritinu

  • Stafrænar myndir á www.sagnanet.is.
  • Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.
  • Myndir af gamla bandinu eru í kassa á Stofnun Árna Magnússonar ásamt fleiri myndum frá Kaupmannahöfn af gömlu bandi.

Notaskrá

Höfundur: Scott, Forrest S.
Titill: , Eyrbyggja saga. The vellum tradition
Umfang: 18
Höfundur: Hreinn Benediktsson
Titill: Linguistic studies, historical and comparative
Titill: , Byskupa sögur
Ritstjóri / Útgefandi: Jón Helgason
Umfang: 13:1
Höfundur: Jón Helgason
Titill: Nordæla, Athuganir um nokkur handrit Egils sögu
Umfang: s. 110-148
Titill: , Byskupa sögur
Ritstjóri / Útgefandi: Jón Helgason
Umfang: 13:2
Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Höfundur: Bekker-Nielsen, Hans, Shook, L. K., Widding, Ole
Titill: The Lives of the Saints in Old Norse Prose: A Handlist, Mediaeval Studies
Umfang: s. 294-337
Titill: , Jóns saga Hólabyskups ens helga
Ritstjóri / Útgefandi: Foote, Peter
Umfang: 14
Höfundur: Stefán Karlsson
Titill: Sagas of Icelandic bishops. Fragments of eight manuscripts, Introduction
Umfang: s. 9-61
Höfundur: Stefán Karlsson
Titill: Opuscula, Halldór Guðmundsson, norðlenzkur maður
Umfang: IV
Titill: Biskupa sögur
Umfang: I-II
Titill: Rit Handritastofnunar Íslands, Laurentius saga biskups
Ritstjóri / Útgefandi: Árni Björnsson
Umfang: 3
Titill: , Biskupa sögur II
Ritstjóri / Útgefandi: Ásdís Egilsdóttir
Umfang: 16
Höfundur: Ólafur Halldórsson
Titill: Grænland í miðaldaritum
Lýsigögn
×

Lýsigögn