Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM 366 4to

Íslendingabók ; Danmörk

Tungumál textans
íslenska

Innihald

1 (1r-57v)
Íslendingabók
Höfundur

Ari Þorgilsson

Athugasemd

Íslenskur texti er á versósíðum, en rectosíður eru auðar, þar sem gert er ráð fyrir þýðingu á latínu (sbr. Katalog I bls. 588; sjá einnig AM 365 4to).

1.1 (1r-3v)
Prologus Íslendingabókar
Titill í handriti

Prologus Íslendingabókar

Upphaf

Íslendingabók gjörða ég fyrst biskupum vorum …

Niðurlag

… þess kyns einn konungur að öllum Norvegi.

Efnisorð
1.1.1
In hoc Codice continentur Capitula.
Titill í handriti

In hoc Codice continentur Capitula.

Upphaf

Frá Íslands byggð …

Niðurlag

… Frá Gissuri biskupi.

1.2 (4r-53v)
Incipit Libellus Islandorum
Titill í handriti

Incipit Libellus Islandorum

Upphaf

Ísland byggðist fyrst úr Norvegi …

Niðurlag

… eftir andlát (Ísleifs) biskups.

Efnisorð
1.3 (53v-54v)
Ættartölur
1.3.1 (53v-54v )
Þetta er kyn biskupa Íslendinga og ættartala
Titill í handriti

Þetta er kyn biskupa Íslendinga og ættartala

Upphaf

Ketilbjörn landnámsmaður …

Niðurlag

… Ketils er nú er biskup að Hólum næstur Jóhanni.

1.3.2 (54v-57v )
Þessi eru nöfn langfeðga Ynglinga og Breiðfirðinga
Titill í handriti

Þessi eru nöfn langfeðga Ynglinga og Breiðfirðinga

Upphaf

I. Yngvi Tyrkjakonungur …

Niðurlag

… föður Brands og Þorgils föður míns en eg heitir Ari.

Lýsing á handriti

Blaðefni
Pappír.
Blaðfjöldi
57 blöð 195 mm x 153 mm). Rekto-síður eru auðar að undanskildum þeim sem á er ritaður titill eða kaflaheiti (sjá t.d. blöð 1r og 4r). Blað 34 er autt.
Tölusetning blaða

  • Blaðmerkt er með rauðu bleki, 1-57.

Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca 160-165 mm x 120-125 mm.
  • Línufjöldi er ca 15-18.
  • Griporð (sbr. blað 14v).

Ástand
Á stöku stað má sjá að bandið er að gefa sig (sjá t.d. 11r-18r).
Skrifarar og skrift

Með hendi Árna Magnússonar, fljótaskrift.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

Blað 53 er innskotsblað.

Band

Pappaband (200 mm x 163 mm x 15 mm). Blár safnmarksmiði er á kili.

Uppruni og ferill

Uppruni

Handritið er að öllum líkindum skrifað í Danmörku og það er tímasett til um 1700 í  Katalog I .

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 12. september 1974.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

VH skráði handritið 12. mars 2009, GI skráði 29. október 2001, Kålund gekk frá handritinu til skráningar 26. mars 1887. Katalog I; bls. 588 (nr. 1119).

Myndir af handritinu

  • Stafrænar myndir á www.sagnanet.is.
  • Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Lýsigögn
×

Lýsigögn