„Þıngmenn dỏma þat mal at logullv“
„með ullkomınnı aſt oc rettıſı tıl“
Niðurlag Þingfararbálks.
Kristindómsbálkur, kap. 2.
Blaðmerking með hendi Árna Magnússonar.
Vantar í handritið.
Ein hönd, æfð og falleg.
Teikning af karli í herklæðum á spássíu bl. 19v.
Skreyttir upphafsstafir bálka (1r, 36r), sex línur að stærð.
Rauðir og bláir upphafsstafir í upphafi hvers kafla, tvær eða þrjár línur að stærð, margir með hala niður eða upp eftir spássíu.
Rauðar kaflafyrirsagnir með hendi skrifarans.
Víða spássíugreinar (t.d. 10r og 16v).
Spjöld klædd hvítu skinni með þremur þvengjum (að hætti Árna Magnússonar) (230 mm x 170 mm x 20 mm).
Skrifað skömmmu eftir lögtöku Jónsbókar, hugsanlega á bilinu 1281-1294 (sjá ONPRegistre , bls. 445). Í Katalog I bls. 421, er það hins vegar tímasett til um 1300.
Af spássíugrein á bl. 16v má ráða að handritið hafi verið eign Jóns Hallgrímssonar á Eyrarlandi í Eyjafirði um miðja 17. öld. Um sama leyti skrifar Bjarni Jónsson nafn sitt neðst á bl. 1r.
Ekki er ljóst hvernig Árni Magnússon eignaðist meginhluta handritsins, en þau blöð eru vel farin þótt í brotum hafi að líkindum verið notuð utan um bækur. Blað 14 fékk Árni árið 1703 hjá Jóni Einarssyni heimilismanni í Garði á Suðurnesjum, en blað 27 árið 1706, hjá Vilhjálmi sem var á Kirkjubóli (sbr. seðla).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 11. júlí 1981.
Tekið eftir Katalog I , bls. 421-422 (nr. 798). Kålund gekk frá handritinu til skráningar 13. október 1886. Haraldur Bernharðsson skráði 2001.
Viðgert á verkstæði Birgitte Dall í maí 1981.
Viðgert í maí 1980.