„Hér hefst Mágus saga“
Skrifað eftir AM 533 4to (sbr. seðil).
„Játmundur hefir keisari heitið …“
„… og dóttur er Constancia hét.“
Nú endist hér þessi saga með þeim formála að drottinn vor Jesús Kristus gefi skrifendum og lesendum og hlýðendum alla góða daga. Amen.
Skrifað eftir AM 510 4to (sbr. seðil).
„Í þann tíma er Hákon jarl Sigurðarson réð fyrir Noregi …“
„… þá hurfu hornin hvítingar.“
Lúkum vér þar þætti Þorsteins bæjarbarns.
Skrifað eftir AM 510 4to (sbr. seðil).
„Heinrekur er maður nefndur, jarl að tign og sat í Saxlandi …“
„… en tóku vænan kastala í ríkum eignum.“
Og lýkur svo þessari frásögu að Guð sé lofaður um allar aldir alda veraldar. Amen.
Titill á seðli framan við Þorsteins þátt: Drauma-Jóns saga.
„Haraldur hinn hárfagri son Hálfdanar var þá einvaldskonungur yfir Noregi …“
„Skrifað eftir AM 510 4to (sbr. seðil). eftir Þorgrím bónda föður sinn.“
Og lýkur hér þessari sögu.
„Að henni má þykja mikið gaman / geymi Guð oss alla saman …“
„… Sjálfur Guð og María þá alla náði.“
„Þeir feðgar hafa skrifað bók þessa og bið eg til Guðs fyrir þeim öllum.“
Fjórtán vísuorð.
Upprunaleg blaðsíðumerking fyrir hverja sögu: 1-202 (bl. 69v og 70r merkt 136 bis og 137 bis), 1-35, 1-25, 1-58.
Ein hönd, sprettskrift. Skriftin er lík hendi Guðmundar Magnússonar frá Hallormsstað (sbr. Antiquarisk Tidsskrift 1846-48 , bls. 154).
Athugasemd sem varðar feril handritsins efst á saurblaði rektó.
Band frá seinni hluta 18. aldar eða byrjun þeirrar 19. (317 null x 208 null x 35 null). Pappaspjöld klædd brúnum marmarapappír, skinn á kili og hornum. Kjölur er lítillega upphleyptur á uppistöðum, með gylltum strikum; gylltur flötur með titli.
Titill á kili: HISTORIÆ FABULOSÆ.
Handritið er líklega skrifað í Kaupmannahöfn. Það er tímasett til síðari hluta 18. aldar í Katalog I , bls. 307.
Merkt Birgi Thorlacius prófessor á saurblaði rektó: e libris Birgeri Thorlacii. Kom í Árnasafn frá Det Kongelige Nordiske Oldskrift-Selskab 1883.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 11. nóvember 1985.
Viðgert í Kaupmannahöfn á árunum 1982-1985.