„Sagan af Þorsteini Víkingssyni“
„Það er upphaf þessar sögu að Logi hefur kóngur heitið …“
„… og frægasti af þeim mönnum er honum lifðu samtíða“
„Enduð að Gauksstöðum d. 21. desember anno 1691. Guðmundur Ólafsson meh.“
og ljúkum vér hér sögu af Þorsteini Víkingssyni. Finis.
Pappír með vatnsmerkjum.
Ekkert mótmerki.
Notað í 1691.Handritið hefur verið blaðmerkt síðar efst í hægra horni 1-14. Blað 15 er ómerkt.
5 kver:
Handritið er blettótt og óhreint en texti er óskertur.
Leturflötur hefur dökknað vegna bleksmitunar.
Bl. 1v-3r og 9v-14v með hendi Guðmundar Ólafssonar, blendingsskrift.
Bl. 1r og 3v-9v með hendi Þorleifs Kláussonar, fljótaskrift.
Band frá 1982 (314 mm x 226 mm x 12 mm). Pappaspjöld klædd fínofnum líndúk, grófari dúkur á kili og hornum, saumað á móttök. Saurblöð tilheyra bandi.
Gamalt band frá árunum 1772-1780. Pappaspjöld klædd handunnum pappír. Titill og safnmark skrifað framan á kápu. Blár safnmarksmiði á kili. Spjaldblöð úr prentaðri bók.
Handritið var skrifað á Íslandi árið 1691 (sbr. bl. 14v).
Séra Þorleifur Kláusson hefur átt bókina: Historíubók þessa á sá ehrugöfugi heiðurskennimann síra Þorleifur Kláusson. Til merkis undirskrifað nafn Halldór Jónsson egh. (bl. 14v).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 25. júní 1984.
Viðgert og bundið 1982. Eldra band fylgir.
Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.