„Saga af Búa Andríðarsyni eður Kjalnesinga saga.“
„Helgi bjóla hét maður, son Ketils flatnefs …“
„… færa í Skálholt og lét búa um. “
„Guðmundur Ólafsson.“
Og endast hér af Búa að segja sem og Kjalnesinga sögu. Finis.
„Af Jökli Búasyni hinum frækna.“
„Það er af þessum Jökli að segja …“
„… og eignaðist Jökull Marsibil og varð mikill höfðingi. Og lýkur hér frá honum að segja.“
Þrír kaflar. Niðurlag sögunnar er síðari viðbót; við skiptingu handritsins hefur blaðið sem texti niðurlagsins var á fylgt með upphafshluta næstu sögu (sjá: Uppruni, Spássíugreinar og aðrar viðbætur).
Tvö kver.
Pappaband (318 mm x 210 mm x 5 mm) er frá 1772-1780.
Safnmark og titill er skrifað framan á kápu. Blár safnmarksmiði er á kili.
Handritið er skrifað á Íslandi og tímasett til síðari hluta 17. aldar í Katalog I, bls. 131. Það var áður hluti af stærri bók.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 23. október 1974.
Kålund gekk frá handritinu til skráningar 22. desember 1885 í Katalog I; bls. 131 (nr. 219), DKÞ grunnskráði 30. október 2001, VH skráði handritið samkvæmt TEIP5 reglum 6. janúar 2009; lagfærði í nóvember 2010. ÞÓS skráði 23. júní 2020.
Bundið af Matthiasi Larsen Bloch á árunum 1772-1780.