Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM 163 p fol.

Sögubók ; Ísland, 1650-1700

Tungumál textans
íslenska

Innihald

1 (1r)
Bandamanna saga
Athugasemd

Einungis niðurlag sögunnar sem krassað hefur verið yfir.

2 (1r-12v)
Gísla saga Súrssonar
Titill í handriti

Saga af Gísla Súrssyni

Upphaf

Byrjar þar sögu þessa að Haraldur …

Niðurlag

… en sjöunda á Mýrum.

Baktitill

Og lúkum vér hér Gísla sögu.

Athugasemd

Síðustu línurnar (ca 5-6) í niðurlagi sögunnar er síðari viðbót; við skiptingu handritsins hefur blaðið sem texti niðurlagsins var á fylgt með upphafshluta næstu sögu (sjá: Uppruni, Spássíugreinar og aðrar viðbætur).

Lýsing á handriti

Blaðefni

Pappír með vatnsmerkjum.

Vatnsmerki 1. Aðalmerki: Dárahöfuð með 7 litlum bjöllum á kraga, Hermes kross, 3 stórir hringir og stafur ( 2-4 , 6 , 9-10 , 12 ) // Mótmerki: Fangamark DM ( 1 , 5 , 7-8 , 11 ).

Blaðfjöldi
12 blöð (327 mm x 205-210 mm).
Tölusetning blaða

  • Upprunaleg blaðmerking (hægra horn efst), 75-86.
  • Blaðmerking með rauðu bleki (efst fyrir miðju), 1-12.

Kveraskipan

Tvö kver.

  • Kver I: blað 1r-4v, 2 tvinn.
  • Kver II: blað 5r-12v, 4 tvinn.

Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca 245-250 mm x 145-155 mm.
  • Línufjöldi ca 38-42 línur.
  • Griporð eru neðst í hægra horni blaða, afmörkuð með pennaflúri.
  • Afmörkun innri og ytri spássíu er hugsanlega fengin með þurroddi.
  • Kaflaskipting: 19 kaflar.

Ástand

  • Krassað hefur verið yfir niðurlag sögu á blaði 1r.
  • Blettir eru víða á blöðum (sbr. t.d. 1v, 5v og 9r).

Skrifarar og skrift

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

Band

  • Pappaband (334 mm x 213 mm x 5 mm) er frá 1772-1780.
  • Safnmark og titill er skrifað framan á kápu. Blár safnmarksmiði á kili.

Fylgigögn

Uppruni og ferill

Uppruni
Handritið er skrifað á Íslandi og tímasett til síðari hluta 17. aldar í Katalog I, bls. 131. Það var áður hluti af stærri bók sem innihélt einnig AM 163 o fol. og AM 163 r fol.
Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 23. október 1974.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

  • ÞÓS skráði 23. júní 2020. VH skráði handritið samkvæmt TEIP5 reglum 5. janúar 2009,
  • DKÞ grunnskráði 29. október 2001.
  • Kålund gekk frá handritinu til skráningar í  22. desember 1885 Katalog I bls. 131 (nr. 218).

Viðgerðarsaga

Ljósmyndað af Jóhönnu Ólafsdóttur 1990.

Ljósmyndað af Jóhönnu Ólafsdóttur í júní 1989.

Bundið af Matthiasi Larsen Bloch á árunum 1772-1780.

Myndir af handritinu

  • Stafrænar myndir á www.sagnanet.is.
  • Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.
  • Svart-hvítar ljósmyndir frá 1989 á Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi.
  • Svart-hvítar ljósmyndir frá 1990 á Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi.
  • Negatíf filma frá 1989 á Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi (askja 337).

Notaskrá

Höfundur: Slay, Desmond
Titill: , The manuscripts of Hrólfs saga kraka
Umfang: XXIV
Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Lýsigögn
×

Lýsigögn