„Sagan af Víglundi væna.“
„Haraldur hinn hárfagri var sonur Hálfdanar svarta …“
„… Hólmketill bóndi sat nú heima. Það var einn dag að…“
Blað 1v er skrifað af Þórði Þórðarsyni fyrir Árna Magnússon. (sjá: Uppruni). Sagan endar óheil í upphafi 19. kafla.
Pappír með vatnsmerkjum.
5 kver:
Pappaband 308 mm x 197 mm x 3 mm) frá 1772-1780.
Framan á kápu eru titill sögu og safnmark skráð. Blár safnmarksmiði er á kili.
Handritið er skrifað á Íslandi og tímasett til síðari hluta 17. aldar í Katalog I, bls. 130. Það var áður hluti af stærri bók (sbr. seðil). Í þeirri bók voru einnig AM 163 e fol., AM 163 n fol., AM 164 b fol. og AM 181 i fol. (þar sem finna má upphaf sögunnar).
Bókina sem handritið var tekið úr fékk Árni Magnússon frá Jóni Þorlákssyni sýslumanni (sbr. seðil).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 26. júní 1974.
Viðgert og bundið af Birgitte Dall í mars 1977.
Bundið af Matthiasi Larsen Bloch 1772-1780. Það band fylgir.