Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM 162 A þeta fol.

Egils saga Skallagrímssonar ; Ísland, 1240-1260

Tungumál textans
íslenska

Innihald

1
Egils saga Skallagrímssonar
Athugasemd

Þrjú brot.

1.1 (1r-v)
Enginn titill
Upphaf

… nú fara fyrst …

Niðurlag

… þar Þórdís er át(ti) …

1.2 (2r-2v)
Egils saga Skallagrímssonar
Upphaf

… og þeir bræður …

Niðurlag

… Ekki vil eg ber(jast) …

1.3 (3r-4v)
Egils saga Skallagrímssonar
Upphaf

… er þeir eru ósáttir …

Niðurlag

… En þó mun Ölvaldi þykja ó(sannligt) …

Lýsing á handriti

Blaðefni
Skinn.
Blaðfjöldi
4 blöð (248 mm x 144 mm).
Tölusetning blaða

Blöðin eru blaðmerkt síðar með bleki, 1-4.

Kveraskipan

Stök blöð.

Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca 192-195 mm x 95-100 mm.
  • Línufjöldi er 40.
  • Gatað hefur verið fyrir línum.

Ástand

  • Blöðin eru skítug og dökk.
  • Á 1r er eyða þar sem lítillega vantar í textann (einn vísuhelming).
  • Bl. 2 er nokkuð skaddað að ofanverðu.
  • Skorið hefur verið ofan af bl. 3 (um það bil tíu línur vantar).
  • Saumgöt eru á bl. 2-3.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

  • Á ytri spássíu 3v hefur Árni Magnússon skrifað (líklega 1704): Frá Pétri Markússyni 1704.
  • Hvert blað hefur nýlega verið merkt á neðri spássíu með titli sögunnar og vísað í blaðsíðutöl.

Band

Band frá 1995 (244 mm x 238 mm). Pappakápa, bl. fest á móttök inn í japanpappír, ofinn líndúkur kili. Handritið liggur í öskju með öðrum AM 162 a fol.-handritum.

Uppruni og ferill

Uppruni

Handritið var skrifað á Íslandi. Það er tímasett til 13. aldar í  Katalog I , bls. 116, en til miðrar aldarinnar í  ONPRegistre , bls. 434 (sjá einnig Early Icelandic Script , bls. xxvi (nr. 39).

Ferill

Árni Magnússon fékk handritið frá Pétri Markússyni 1704 (sjá ytri spássíu 3v). Áður átti það Ragnheiður Jónsdóttir í Gröf á Höfðaströnd.

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 19. september 1996.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

Viðgerðarsaga

Gert við og bundið í Kaupmannahöfn í júní til nóvember 1995. Í öskju með brotum úr níu öðrum handritum. Með fylgdi nákvæm lýsing á viðgerðum og ljósmyndun.

Myndir af handritinu

  • Stafrænar myndir á www.sagnanet.is.
  • Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.
  • Svart-hvítar ljósmyndir á Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi.

Notaskrá

Titill: AM 162 A (ypsilon, delta, zeta, þeta) fol (Reykjavík),
Ritstjóri / Útgefandi: Kjeldsen, Alex Speed
Umfang: s. 51-208
Höfundur: Kjeldsen, Alex Speed
Titill: , Filologiske studier i kongesagahåndskriftet Morkinskinna
Umfang: Supplementum 8
Höfundur: Seip, Didrik Arup
Titill: Nordisk kultur, Palæografi. B. Norge og Island
Umfang: 28:B
Höfundur: Lethbridge, Emily
Titill: Gripla, The Icelandic saga and saga landscapes
Umfang: 27
Höfundur: Finnur Jónsson
Titill: Arkiv för nordisk filologi, Overgangen -ö (ø) u i islandsk
Umfang: 35
Höfundur: Lindblad, Gustaf
Titill: Studier i Codex Regius av äldre eddan
Höfundur: Guðvarður Már Gunnlaugsson
Titill: Sýnisbók íslenskrar skriftar
Höfundur: Haraldur Bernharðsson
Titill: Gripla, Þykkja og þykja. Hljóðbeygingarvíxl einfölduð
Umfang: 15
Höfundur: Hreinn Benediktsson
Titill: Linguistic studies, historical and comparative
Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Höfundur: Chesnutt, Michael
Titill: On the structure, format, and preservation of Möðruvallabók, Gripla
Umfang: 21
Höfundur: Males, Mikael
Titill: Egill och Kormákr - tradering och nydikting,
Umfang: 1
Höfundur: Widding, Ole
Titill: Håndskriftanalyser. Én eller flere skrivere,
Umfang: s. 81-93
Titill: "Syvende og ottende brudstykke". Fragmentet AM 325 IV α 4to, Opuscula IV
Ritstjóri / Útgefandi: Louis-Jensen, Jonna
Umfang: s. 31-60
Höfundur: Þorgeir Sigurðsson
Titill: Són, Hví skal eigi drepa Egil?
Umfang: 16
Lýsigögn
×

Lýsigögn