Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM 157 a fol.

Þórðar saga hreðu ; Noregur, 1690-1697

Innihald

(1r-30v)
Þórðar saga hreðu
Titill í handriti

Saga af Þórði hreðu

Upphaf

Þórður hét maður son Hörða-Kára, mikill að virðingu …

Niðurlag

… Höfum vér eigi heyrt fleira af honum með sannleika sagt.

Baktitill

og lýkur hér nú sögu Þórðar hreðu.

Athugasemd

Gerð: heila sagan.

Tungumál textans
íslenska

Lýsing á handriti

Blaðefni
Pappír.
Blaðfjöldi
30 blöð (310 mm x 200 mm).
Tölusetning blaða

  • Upprunaleg blaðsíðumerking, 1-60.
  • Síðari tíma blaðmerking með rauðum lit, 1-30.

Kveraskipan

Fjögur kver:

  • Kver I: blöð 1-8, 4 tvinn.
  • Kver II: blöð 9-16, 4 tvinn.
  • Kver III: blöð 17-22, 3 tvinn.
  • Kver IV: blöð 23-30, 4 tvinn.

Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca 240 mm x 140 mm.
  • Línufjöldi er ca 26-29.
  • Vísuorð eru sér um línu (sbr. t.d. 11v, 18r og 21v).
  • Markað hefur verið fyrir innri og ytri spássíu með þurroddi.
  • Griporð eru á blöðum 16v og 22v.

Ástand

  • Fyrirsögn og upphafsstafur hafa smitast í gegn á blaði 1.

  • Blekblettir á stöku stað (sbr. t.d. blöð 25v-26r).

Skrifarar og skrift

Skreytingar

  • Skreyttur upphafsstafur í fyrirsögn og í upphafi texta á blað 1r.

  • Þrír bókahnútar eru í lok sögu (sjá blað 30v).

Band

Pappaband (319 null x 217 null x 8 null) frá 1772-1780. Blár safnmarksmiði á kili.

Innanverð spjaldblöð eru klædd blöðum úr prentaðri bók.

Uppruni og ferill

Uppruni

Handritið var skrifað í Noregi (Stangarlandi) og er tímasett frá ársbyrjun 1690 til vors 1697 í umfjöllun Más Jónssonar um skrifarann Ásgeir Jónsson (sbr. Már Jónsson 2009: 282-297 ) og til um 1700 í Katalog I , bls. 109. Virkt skriftartímabil skrifara var ca 1686-1707.

Það er uppskrift eftir pappírshandriti, sem Árni Magnússon sendi Þormóði Torfasyni (sbr. AM 435 b 4to, blað 7r).

Það var áður hluti af stærri bók sem innihélt einnig AM 149 fol., AM 157 g fol., AM 154 fol., AM 157 c fol., AM 140 fol., AM 157 e fol., AM 164 k fol., AM 150 fol., AM 770 a 4to og AM 157 d fol. (sbr. AM 435 b 4to, blað 6v-7r).

Ferill

Bókin sem handritið tilheyrði var nr. XIV fol. í safni Þormóðs Torfasonar. Árni Magnússon fékk hana frá ekkju Þormóðs árið 1720 og tók í sundur (sbr. AM 435 b 4to, blað 6v-7r ).

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 2. apríl 1974.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

Kålund gekk frá handritinu til skráningar 2. desember 1885, Katalog I; bls. 109 (nr. 186), DKÞ grunnskráði 28. september 2001, VH skráði handritið samkvæmt TEIP5 reglum 1. desember 2008; lagfærði í nóvember 2010.

Viðgerðarsaga

Bundið af Matthiasi Larsen Bloch á árunum 1772-1780.

Myndir af handritinu

  • Stafrænar myndir á www.sagnanet.is.
  • Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Höfundur: Már Jónsson
Titill: Heimtur: Ritgerðir til heiðurs Gunnari Karlssyni sjötugum, Skrifarinn Ásgeir Jónsson frá Gullberaströnd í Lundarreykjadal
Ritstjóri / Útgefandi: Guðmundur Jónsson, Helgi Skúli Kjartansson, Vésteinn Ólason
Umfang: s. 282-297
Höfundur: Widding, Ole
Titill: Håndskriftanalyser,
Umfang: s. 65-75
Lýsigögn
×

Lýsigögn