Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM 128 fol.

Sögubók ; Ísland, 1600-1699

Tungumál textans
íslenska

Innihald

1 (2r-6r)
Laxdæla saga
Athugasemd

Fimm brot.

1.1 (2r-2v)
Enginn titill
Vensl

Uppskriftin er ættuð frá AM 132 fol. (sbr. Kålund, Katalog I , bls. 91).

Upphaf

Ketill flatnefur hét maður …

Niðurlag

… nefni ég til þess Björn …

1.2 (3r-3v)
Enginn titill
Niðurlag

… þeirra strauma er á beiða …

1.3 (4r-4v)
Enginn titill
Niðurlag

… þar um Hörðaland …

1.4 (5r-5v)
Enginn titill
Niðurlag

… slík illmenni hið næsta …

1.5 (6r-6r)
Enginn titill
Niðurlag

… heyrt þessa sögu lengri.

2 (6v-12r)
Þórðar saga hreðu
Titill í handriti

Saga af Þórði hreðu

Upphaf

Þórður hét maður son Hörða-Kára …

Niðurlag

… og lýkur hér nú sögu Þórðar hreðu.

Athugasemd

Það vantar í söguna milli blaða 6 og 7, frá 4. línu í vísu til Þórður var knástur.

3 (12r-25r)
Vatnsdæla saga
Titill í handriti

Hér hefst Vatnsdæla

Upphaf

Maður er nefndur Ketill …

Niðurlag

… svo sem sá er framar elskaði sannan Guð.

Baktitill

Endir Vatnsdælu.

Athugasemd

Að mati Kålunds er Vatnsdæla hér tekin úr Vatnshornsbókinni (sbr. Katalog I , bls. 92).

4 (26r-51v)
Egils saga Skallagrímssonar
Upphaf

Úlfur hét maður …

Niðurlag

… Skúli hafði átt í víking vii orustur.

Athugasemd

Tvö blöð vantar á milli blaða 34 og 35. Sami texti og í Wolfenbüttelbók að mati Kålunds (sbr. Katalog I , bls. 92.

Lýsing á handriti

Blaðefni
Skinn.
Blaðfjöldi
51 blað (280 null x 245 null). Auð blöð: 1r-v að mestu; síðari dálkur á blaði 25r er auður að hálfu, bl. 25v og 51v.
Tölusetning blaða

  • Upprunaleg blaðmerking með dökku bleki, 1-48. Blöð 4 og 5 eru ómerkt.
  • Síðari tíma blaðmerking með rauðu bleki, 1-51.

Umbrot

  • Tvídálka.
  • Línufjöldi er ca 48.
  • Griporð undir dálkum.
  • Eyður fyrir upphafsstafi.
  • Bendistafir: W eða v á spássíu og á milli dálka er tákn um vísu í texta.
  • Á blaði 6v má sjá dæmi um hvernig leturflöturinn er afmarkaður.
  • Saga Þórðar hreðu og Vatnsdæla enda í totu, sbr. blöð 12r og 25r.

Ástand

  • Mörg blöð hafa verið skorin úr handritinu og blað 5 er skaddað vegna afskurðar.
  • Á neðri spássíu blaðs 34v stendur hér vantar c. 2 blöð.
  • Blöð 35 og 36 hafa ekki verið heil þegar á þau var skrifað.
  • Á blaði 37r hefur textinn skaddast og stafir síðustu 6 lína í hægri dálki máðst burt að hluta.
  • Blöð eru sum stökk og skítug, sjá til dæmis bl. 1r og 7r.

Skrifarar og skrift

Með hendi Brynjólfs Jónssonar á Efstalandi., blendingsskrift.

Óþekktur skrifari skrifar niðurlag lokakafla Vatnsdæla sögu á blöðum 24v-25r, kansellískrift.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

Síðasti kafli Vatnsdæla sögu er viðbót með yngri hendi.

Band

Band er frá ca 1911-1913. Bókfell á kili og hornum, pappírsklæðning.

Fylgigögn

  • Seðill (195mm null x 145mm null) með hendi Jóns Ólafssonar úr Grunnavík er límdur á blað 2r: Laxdæla sagan í þessari bók er progenies þeirrar membrana í folio sem Björn Magnússon gaf Thomæ Bartholino viger það víst. Hún kann þéna til samburðar, þar sem pergaments bókin er nú ólæs orðin. Þórðar hreðu saga. Egils saga í þessari bók er ekki tekin úr nefndri Björns Magnússonar membrana, er sumstaðar styttri og víða öðruvísi orðuð. Sýnist annars að vera víða rangt skrifuð. Vatnsdæla sagan virðist mér vera eins og þær almennilegu, id est, tekin úr Vatnshornsbókinni [Vatnshyrnu] sem nú á heima í Bibliotheca Reseniana Hafniæ en er hér afleitlega rangt skrifuð. .
  • Seðill (188 null x 142 null) með hendi Árna Magnússonar er límdur á blað 2r: Mér virðist sama hönd á þessari bók, sem á Hungurvöku og Þorláks sögu er herra Þorlákur hefur látið skrifa á kálfskinn í 4to og ég nú á. Er svo líkast til að geta að herra Þorlák hafi ég þessa bók rita látið. Kannski hún sé komin frá Hólum með Þormóði Torfasyne Anno 1662. Mig minnir Thomæ Bangii nafn stæði á bókinni þar sem saurblaðið er nú raderað. En ég hefi fengið hana aftur [frá] Rosencrantz sem ég sé af numero 625 sem framan á saurblaðinu stendur. Hoc ultima scripti 1723.

Uppruni og ferill

Uppruni

Handritið er skrifað á Íslandi. Talið er að Brynjólfur Jónsson hafi skrifað það fyrir Þorlák Skúlason biskup. Það er tímasett til 17. aldar í Katalog I , bls. 91.

Á seðli með hendi Jóns Ólafssonar úr Grunnavík eru athugasemdir um þrjár sagnanna og tengsl Laxdæla sögu og Egils sögu við fólíóhandrit sem Björn Magnússon gaf Thomas Bartholin. Vatnsdæla sögu telur Jón skrifaða eftir Vatnshyrnu í bókasafni Resens.

Ferill

Árni Magnússon keypti bókina eftir Jens Rósencrantz 1695.

Hún er sennilega komin frá Hólum með Þormóði Torfasyni 1662.

Nafnið Thomas Bangius stendur innan á titilblaði.

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar tók við handritinu 8. nóvember 1973.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

ÞS yfirfór 30. desember 2009.

VH skráði handritið skv. TEIP5 reglum 3. mars 2009,

ÓB tölvuskráði 31. ágúst 2001,

Kålund gekk frá handritinu til skráningar 17. nóvember 1885 Katalog I , bls. 91-92 (nr. 157).

GV sló inn texta af seðlum Árna Magnússonar undir umsjón ÞS og með hliðsjón af gögnum frá MJ.

Viðgerðarsaga

Viðgert og bundið af Otto Ehlert ca 1911-1913.

Myndir af handritinu

Stafrænar myndir á www.sagnanet.is.

Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn. 

Notaskrá

Höfundur: Jacobsen, Bent Chr.
Titill: , Om lovbøgernes kristendomsbalk og indledningskapitlerne i de yngre kristenretter
Umfang: s. 77-88
Titill: Egils saga Skallagrímssonar. Bind I. A-redaktionen,
Ritstjóri / Útgefandi: Bjarni Einarsson
Umfang: 19
Titill: , Egils saga Skallagrímssonar, tilligemed Egils större kvad
Ritstjóri / Útgefandi: Finnur Jónsson
Umfang: 17
Titill: , Vatsdæla saga
Ritstjóri / Útgefandi: Finnur Jónsson
Umfang: 58
Höfundur: Haukur Þorgeirsson, Teresa Dröfn Njarðvík
Titill: The Last Eddas on vellum, Scripta Islandica
Umfang: 68
Höfundur: Jón Helgason
Titill: Observations on some manuscripts of Egils saga,
Umfang: s. 3-47
Höfundur: Jón Helgason
Titill: Athuganir um nokkur handrit Egils sögu, Nordæla
Umfang: s. 110-148
Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Titill: , Laxdæla saga
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Umfang: 19
Höfundur: Chesnutt, Michael
Titill: Egils saga Skallagrímssonar. Bind III. C- redaktionen,
Umfang: 21
Höfundur: Stefán Karlsson
Titill: Um Vatnshyrnu,
Umfang: s. 279-303
Höfundur: Heizmann, Wilhelm
Titill: Kannte der Verfasser der Laxdæla saga Gregors des Großen Moralia in Iob?,
Umfang: s. 194-207
Lýsigögn
×

Lýsigögn